Lífið

Tískuvikan í New York: Þóttist þekkja hönnuðinn Chandler Bing

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Skjáskot
Tískuvikunni í New York er lokið og nýtti grínistinn Jimmy Kimmel tækifærið. Sendi hann sjónvarpstökulið á vettvang til að komast að því hve vel gestir vikunnar væru að sér.

Í stuttu máli voru gestirnir spurðir út í hvernig þeir þættu hinir og þessir hönnuðirnir. Málið var hins vegar að um tilbúna hönnuði var að ræða, þ.e. þeir hönnuðir sem spurt var um eru ekki til eða í það minnsta voru ekki með föt á tískuvikunni.

Nokkrir sérfræðingar í tískuheiminum vildu þó ekki láta grípa sig í bólinu, létu eins og þeir þekktu viðkomandi hönnuði og sumir höfðu meira að segja sterkar skoðanir á þeim. Meðal þeirra hönnuða sem spurt var um var Chandler Bing, persóna Matthew Perry úr sjónvarpsþáttunum Friends.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×