Lífið

Tískuelítan fjölmennti til Stellu McCartney

Hress Rita Ora, Stella McCartney og stjörnuljósmyndarinn Mario Testino.
Hress Rita Ora, Stella McCartney og stjörnuljósmyndarinn Mario Testino. Vísir/Getty
Það er nóg að gera hjá tískupressunni um þessar mundir þar sem stærstu tískuvikurnar fara fram í New York, London, Mílanó og París.

Það var varla þverfótað fyrir stjörnum í tískupartíi Stellu McCartney í tengslum við tískuvikuna í ­London í vikunni.

Þangað mættu meðal annars leikarinn Colin Firth og eiginkona hans, Livia, söngkonurnar Rita Ora og Ellie Goulding og auðvitað faðir hönnuðarins, Paul McCartney, og nýbökuð eiginkona hans, Nancy Shevell.  

Smart Daisy Lowe og Poppy Delevingne.
Hjónin mættu Salma Hayek og Francois-Henri Pinault.
Flott í tauinu Olivia Palermo mætti vel klædd í partíið.
Ritstjórinn Anna Wintour var glæsileg að vanda.
Brosmild Livia og Colin Firth.
Hressar Stella og leikkonan Dakota Johnson ásamt vinkonu. Nordicphotos/getty
Flott feðgin Mary McCartney og Sir Paul McCartney.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×