Tónlist

Tilnefningar til Mercury-verðlaunanna tilkynntar

Þórður Ingi Jónsson skrifar
Listinn yfir tilnefningar til bestu plötu ársins fyrir Mercury-tónlistarverðlaunin hefur verið gefinn út. Á verðlaunahátíðinni er besta breska plata ársins valin af dómnefnd, sem skipuð er af breskum tónlistargagnrýnendum og bransafólki.Meðal þeirra platna sem eru tilnefndar eru LP1 eftir FKA Twigs, Everyday Robots eftir Íslandsvininn Damon Albarn og One Breath eftir verðandi Íslandsvininn Anna Calvi, sem spilar á Airwaves tónleikahátíðinni í ár. Tilkynnt verður um sigurvegarann 29. október en í fyrra var það annar Íslandsvinur, tónlistarmaðurinn James Blake sem hlaut verðlaunin.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×