Heilsa

Tilfinningarík stund þegar Hjólakraftur kom í mark

Stefán Árni Pálsson skrifar
Liðin sem kepptu í Hjólakraftsflokknum komu í mark í WOW Cyclothon-keppninni á tíunda tímanum í morgun en þá höfðu krakkarnir hjólað í um fimmtíu klukkustundir. 

Stundin var tilfinningarík og voru krakkarnir að vonum ánægð og stolt af sjálfum sér.

Hjólakraftur er félag sem heldur námskeið fyrir ungt fólk á öllum aldri. Fyrstu námskeiðin voru haldin sumarið 2012 en Hjólakraftur bar sigur úr býtum í áheitasöfnuninni á síðasta ári.

Hugmyndin af Hjólakrafti var að hitta fyrir fólk sem var að tapa í baráttunni fyrir hinum ýmsu lífstílssjúkdómum. Með góðu samstarfi við Heilsuskólann á LSH urðu til hópar af krökkum sem langaði að taka þátt í að hjóla.

Krakkarnir héldu af stað á mánudagskvöldið klukkan 18:00 frá bílastæðinu við Laugardalsvöll.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×