Innlent

Þyrla Landhelgisgæslunnar send út á Snæfellsnes eftir fjórhjólaslys

Stefán Árni Pálsson skrifar
visir/vilhelm
Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út rétt fyrir klukkan 12 að hádegi að beiðni læknis í Ólafsvík eftir að fjórhjólaslys varð nærri Miðhúsum á Snæfellsnesi.

Var þyrlan TF-LÍF þá í æfingum við Skorradalsvatn og snéri tafarlaust til Reykjavíkur til eldsneytistöku.

Fór hún að nýju í loftið kl. 12:40 og og lenti við bæinn Miðhús á Snæfellsnesi kl. 13:04 þar sem sjúkrabíll beið með hina slösuðu sem var flutt um borð í þyrluna.

Farið var að nýju í loftið kl. 13:18 og lent við Landspítalann í Fossvogi kl. 13:50. Ekki er ljóst hversu margir slösuðust að svo stöddu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×