Innlent

Þyrla Landhelgisgæslunnar sækir veikan skipverja

Birgir Olgeirsson skrifar
Er áætlað að þyrlan verði komin að skipinu rúmlega ellefu í kvöld og mun hún flytja skipverjann á sjúkrahús.
Er áætlað að þyrlan verði komin að skipinu rúmlega ellefu í kvöld og mun hún flytja skipverjann á sjúkrahús. Vísir/Vilhelm
Stjórnstöð Landhelgisgæslunnar barst á níunda tímanum í kvöld beiðni um þyrlu vegna veiks skipverja um borð í skipi sem statt var á Vestfjarðamiðum.

TF-GNÁ, þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út og siglir skipið nú til móts við þyrluna. Er áætlað að þyrlan verði komin að skipinu rúmlega ellefu í kvöld og mun hún flytja skipverjann á sjúkrahús.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×