Innlent

Þúsundir renndu sér niður brekkurnar í Bláfjöllum

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Röðin í skíðaleiguna í Bláfjöllum í dag.
Röðin í skíðaleiguna í Bláfjöllum í dag. mynd/bláfjöll
Fjöldi fólks naut veðurblíðunnar í Bláfjöllum í dag en Einar Bjarnason, rekstrarstjóri skíðasvæðisins, telur að á milli 3000 og 4000 hafi rennt sér niður brekkurnar.

„Það hefur verið ótrúleg fjölgun í barnafjölskyldum sem koma hingað til að stunda þetta sport og foreldrar koma hingað jafnvel og fara ekki á skíði sjálfir heldur eru bara að leyfa börnunum sínum að prófa,“ segir Einar.

Alls eru 14 lyftur í notkun um helgar í Bláfjöllum og segir Einar að fjöldinn í dag hafi dreifst vel um svæðið. Það hafi hins vegar verið örtröð í skíðaleiguna og fólk hafi þurft að bíða þar lengi í röð.

„Við erum bara með leigu hérna ofan í kjallara í húsi sem var byggt árið 1983 og við önnum ekki eftirspurn lengur, svo einfalt er það. Það er náttúrulega ömurlegt að þurfa að láta fólk bíða í röð og það er einfaldlega kominn tími á nýjan skála. Við vonum því bara í nánustu framtíð að það komi nýr skáli,“ segir Einar.

Aðspurður hvernig veturinn hefur verið segir Einar að hann hafi farið frábærlega af stað.

„Eins og ég segi, það er mikil fjölgun í barnafjölskyldum sem hingað koma og svo er skíðaskólinn og brettaskólinn oft orðinn fullur strax á mánudögum þegar skráning hefst fyrir næstu helgi. Þannig að við erum bara virkilega ánægð með þetta.“

Bláfjöll lokuðu klukkan 17 í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×