Lífið

Þúsundir klæddust gulu fyrir Seth litla

Atli Ísleifsson skrifar
Seth Lane er fimm ára gamall.
Seth Lane er fimm ára gamall.
Fjöldi fólks birti í gær prófílmynd af sér á samfélagsmiðlum þar sem þau klæddust gulu til stuðnings breska drengnum Seth Lane. Hinn fimm ára gamli Seth fæddist án ónæmiskerfis og hefur þurft að lifa í einangrun stærstan hluta lífs síns.

Í frétt Mashable segir að Leanne, móður Seth, hafi birt myndband á YouTube í byrjun mánaðar þar sem hún bað fólk um að klæðast gulu sem er uppáhaldslitur Seth, þann 27. mars. Myndbandið vakti gríðarlega athygli.

Eftir að beinmergsaðgerð fór úrskeiðis hefur Seth ekki getað yfirgefið stofu sína á sjúkrahúsinu af ótta við að smitast af veiru eða sjúkdómi.

Fólk hefur birt myndirnar á Facebook og Twitter með kassamerkinu #wearyellowforseth og má sjá myndirnar hér að neðan.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×