Lífið

Þúsundir barna fögnuðu 10 ára afmæli Skoppu og Skrítlu

Baldvin Þormóðsson skrifar
Skoppa og Skrítla eru núna 10 ára.
Skoppa og Skrítla eru núna 10 ára. mynd/aðsend
Þúsundir barna sungu hástöfum með þegar Skoppa og Skrítla fögnuðu tíu ára afmæli sínu í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum um síðustu helgi. Allir bestu vinir Skopppu og Skrítlu skemmtu á hátíðinni, þar á meðal Bakari svakari, Zúmmi og Lúsí.

Ásóknin í garðinn var svo mikil að hundruð gesta voru enn fastir í röð við miðasöluna þegar sýningin átti að hefjast og seinkaði henni því um tuttugu mínútur.

Allt fór þó vel að lokum og skemmtu krakkarnir og aðstandendur sýningarinnar sér konunglega eins og sjá má á meðfylgjandi myndum.

Mikið stuð var í lestinni gömlu.mynd/aðsend
   

Lestin gamla og góða veitti börnunum mikla gleði.mynd/aðsend
   

Sumir voru orðnir þreyttir eftir daginn.mynd/aðsend
    






Fleiri fréttir

Sjá meira


×