Lífið

Þrír þurftu að aðstoða ferðamann sem festist í hringabrynju úti á Granda

Stefán Árni Pálsson skrifar
Þetta er fyndið atvik.
Þetta er fyndið atvik.
Óborganlegt atvik átti sér stað á Sögusafninu við Grandagarð 2 um helgina þegar ferðamaður festist í hringabrynju.

Safnið þykir nokkuð vinsælt á meðal túrista en það sýnir íslenska sögu eins og hún er í raun og veru.

Konan þurfti aðstoð frá þremur öðrum ferðamönnum til að komast úr brynjunni og náðist þetta allt á myndband sem sjá má hér að neðan.  






Fleiri fréttir

Sjá meira


×