Innlent

Þrír hælisleitendur stöðvaðir á svæði Faxaflóahafna

Jóhann Óli EIðsson skrifar
Mennirnir voru stöðvaðir á leið í skip.
Mennirnir voru stöðvaðir á leið í skip. vísir/gva
Þrír hælisleitendur voru handteknir á svæði Faxaflóahafna á tólfta tímanum í dag. Grunur vaknaði um að mennirnir væru að reyna að lauma sér um borð í farskip. Mál þeirra er nú í ferli. Þetta kemur fram í dagbók lögreglunnar.

Í dagbókinni kemur einnig fram að upplýsingar frá vitnum hafi varpað grun á unglinga í tengslum við íkveikjurnar tvær í Iðufelli fyrr í dag. Rætt var við foreldra unglinganna vegna málsins.

Þá var lögreglan í tvígang kölluð út vegna smávægilegra innbrota.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×