Innlent

Þrír fluttir á slysadeild eftir árekstur í Keflavík

Jóhann Óli Eiðsson skrifar
Þrír voru fluttir til aðhlynningar.
Þrír voru fluttir til aðhlynningar. vísir/vilhelm
Mikil mildi þykir að ekki fór verr þegar Toyota Yaris og Land Cruiser skullu saman við Mánatorg í Keflavík. Þrír voru í bílunum og voru fluttir með sjúkrabíl á sjúkrahús en meiðsl þeirra eru talin minniháttar.

Samkvæmt upplýsingum frá Lögreglunni á Suðurnesjum er ekki meira vitað um tildrög slyssins. Annar bíllinn ók yfir á öfugan vegarhelming. Ökumaður hins bílsins reyndi að forða árekstri en án árangurs. Talið er að bílbelti hafi orðið til þess að ekki fór verr. Flytja þurfti bílana af vettvangi með dráttarbíl. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×