Innlent

Þriggja tíma leit sérsveitar að vopnuðum manni í Bryggjuhverfinu lauk með handtöku

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Úr Bryggjuhverfinu.
Úr Bryggjuhverfinu. Vísir
Fjölmennt lið lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu og sérsveitar ríkislögreglustjóra var kallað út í Bryggjuhverfið sunnan Gullinbrúr um tíuleytið í gærkvöldi vegna tilkynningar um vopnaðan mann sem hefði í hótunum. Stundin greindi fyrst frá.

Kristján Ólafur Guðnason, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, segir að málinu hafi lokið með handtöku um klukkan eitt í nótt. Maðurinn er í haldi lögreglu og bíður yfirheyrslu.

Málið er í rannsókn lögreglu en von er á tilkynningu frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.



 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×