Þrettán slösuðust í sex umferðarslysum Atli Ísleifsson skrifar 25. nóvember 2014 15:53 Þrjú umferðarslys voru tilkynnt föstudaginn 21. nóvember. Vísir/Vilhelm
Þrettán vegfarendur slösuðust í sex umferðarslysum á höfuðborgarsvæðinu í síðustu viku. Í tilkynningu frá lögreglu segir að mánudaginn 17. nóvember klukkan 8.25 lenti hjólreiðarmaður, sem hjólað hafði reiðhjólastíg við Hverfisgötu til austurs, á bifreið, sem hafði verið ekið norður Barónsstíg og stöðvuð við gatnamótin. Hjólreiðamaðurinn var fluttur á slysadeild með sjúkrabifreið. „Tvö umferðarslys voru tilkynnt þriðjudaginn 18. nóvember. Kl. 10.11 varð 12 ára drengur á reiðhjóli fyrir bifreið, sem ekið var austur Breiðholtsbraut að Norðurfelli. Drengurinn var að hjóla áleiðis yfir götuna á gangbraut, sennilega á móti rauðu ljósi. Hann meiddist á hné og fór á slysadeild til skoðunar,“ segir í tilkynningunni. Klukkan 17.56 varð kona fyrir bifreið á bílastæðinu hjá Húsgagnahöllinni við Bíldshöfða. Mikið myrkur var er atvikið átti sér stað og léleg lýsing. Konan fór sjálf á slysadeild og segir að hún hafði fleyðrast á höku og marist. Þrjú umferðarslys voru tilkynnt föstudaginn 21. nóvember. Klukkan 9.08 var strætisvagni ekið í gegnum grindverk. Strætisvagninum hafði verið ekið norður Flatahraun að gatnamótum Suðurhrauns þar sem vagninum var ekið á grindverkið, inn á athafnasvæði, og út af því aftur uns hann stöðvaðist á Miðhrauni. „Ökumaðurinn hafði „dottið út” þegar hann nálgaðist gatnamótin, en rankaði síðan við sér þegar hann var búinn að aka tvívegis í gegnum girðinguna og stöðvaði vagninn. Sjö farþegar voru í strætisvagninum. Þeir kvörtuðu yfir minniháttar meiðslum í baki og fótum og voru því ásamt bílstjóranum fluttir á slysadeild til skoðunar.“ Klukkan 17.15 hjólaði maður á steintyppi á Lækjartorgi og kastast fram fyrir sig. Hann var fluttur með sjúkrabifreið á slysadeild. „Og kl. 17.38 varð kona fyrir bifreið, sem bakkað var úr stæði við Krónuna í Vallakór. Konan féll við og var bifreiðinni þá ekið yfir rist hennar. Hún var flutt á á slysadeild með sjúkrabifreið.“
Mest lesið María Sigrún látin fara úr Kveik Innlent „Breiðholt mesta fátæktargildra landsins“ Innlent Halla Hrund mælist með mest fylgi allra frambjóðenda Innlent Ætlar í aðra undirskriftasöfnun Innlent Svona var stemmningin á lokaspretti forsetaefnanna í Hörpu Innlent Auglýsa eftir „eiganda“ fjármuna Innlent Dregur framboðið til baka Innlent Sigríði þykir ólíklegt að hún nái undirskriftum Innlent „Ef ég get flogið þremur gerðum af þyrlum þá get ég tekið ákvörðun fyrir þjóðina“ Innlent Svona var Pallborðið með Arnari Þór, Ásdísi Rán og Ástþóri Innlent Fleiri fréttir Krefjast skýringa á brotthvarfi Maríu Sigrúnar Veisluhöld forseta séu barns síns tíma Húsráðendum tókst að ráða niðurlögum elds í þakskyggni Landsréttur komi fram við ákæruvaldið eins og lítið barn Mannasættir sem óttist ekki að standa í fæturnar Mótmælendur fengu óvæntan liðstyrk frá Hollywood Ráðherra reiðubúin að vinna með atvinnuveganefnd að breytingum Vill skipa í ríkissjórn eftir eigin höfði Halla Hrund mælist með mest fylgi allra frambjóðenda Mikil tíðindi í glænýrri könnun Ástþór sannfærður um að verða sjöundi forsetinn Refsing fyrir að nauðga stjúpdóttur æskuvinar þyngd Ætlar í aðra undirskriftasöfnun Hjúkrunarfræðingurinn ekki laus allra mála enn Trúnaðarsamtöl við forsætisráðherra lykilatriði Sprakk úr hlátri „Ísdrottningin myndi bráðna ef hér kæmi kjarnorkusprengja“ Með hundruð sjálfboðaliða í liði sínu Samskiptaleysi meðal lögreglumanna olli því að fólk var sektað Verði ekki meðvirk frekar en Ólafur Ragnar Rifjaði upp þegar forsetinn bjargaði landinu Skemmdarvargar á eftir útilistaverkum eftir Einar Jónsson Krafturinn í gosinu gæti aukist verulega haldi kvikusöfnun áfram Þrettánda nafnið bætist við Fimm af tólf skiluðu einungis rafrænum meðmælum Gylfi leiðir samhæfingu vegna Grindavíkur María Sigrún látin fara úr Kveik Viktor stal senunni: Hefði ekki haft tíma til að safna ef hann væri í vinnu Forsetaefni streymdu í Hörpu Svona var Pallborðið með Arnari Þór, Ásdísi Rán og Ástþóri Sjá meira