Matur

Þorrabjór á bóndadegi

Úlfar Linnet skrifar
Úlfar Linnet bragðar á þorrabjór.
Úlfar Linnet bragðar á þorrabjór.
Íslenskasti flokkur árstíðarbjóra í ríkinu er án efa flokkur þorrabjóra. Sala á honum hefst á bóndadag og líkur mánuði seinna á konudag. Í ár koma öll brugghúsin, utan Ölvisholts, með bjór á markað og verða þeir 6-7 talsins. Þessu til viðbótar kemur íslenskur mjöður á markað í fyrsta skipti.

Þorrabjórarnir skera sig nokkuð frá sérbjórum undangenginna jóla. Á meðan jólabjórarnir voru margir sætir og með léttum lakkrískeim eru þorrabjórarnir mun þurrari  og humlabeiskjan betur til staðar. Án nokkurs efa er meiri víkingur og minni sykurpúði í þorrabjórnum.

Fram að næsta föstudegi mun birtast umfjöllun um þorrabjórana í þremur þáttum hér á Vísi en við hefjum leikinn á bjórum frá Vífilfelli.

Þorraþræll (5,6%) er í rafgullinn bjór í enskum Extra Special Bitter stíl. Ilmurinn ber með sér korn, örlitla sætu og humlakeim.

Eins og margir Bitter bjórar er Þorraþræll þurr með korntónum, nokkuð léttur og auðdrekkanlegur en á sama tíma með skýra beiskju sem gefur áhugaverðan karakter.

Velta mætti upp þeirri spurningu hvort ekki sé viss þorramótsögn í því að Þorraþræll sé í enskum stíl. Mitt svar væri að fjölbreytileika beri að fagna og bitter stíllinn er alls ekki sá vitlausasti til að hafa með þorramat.

Fyrir hverja : Alla sem njóa örlítið bragðmeiri bjóra en eru ekki að leita af þungum bjór.



Einiberja Bock (6,7%) er þorrabjórinn í bock-seríu Vífilfells. Hann minnir um margt á jóla bockinn en einiber gefa honum þó sín séreikenni.

Bjórinn er rafgullinn með ljósa froðu. Ilmar af malti, makrónum og eplum. Í bland við karamellur og sætu koma einiberin greinilega fram í bragði án þess að vera ágeng eða yfirþyrmandi. Þau skapa tengingu við bjóra fyrri tíma en einir leikur stórt hlutverk við gerð hefðbundinna sveitabjóra í norðu Skandinavíu.

Einiberja Bock er nokkuð áfengur og gerir það honum gott eitt að koma út úr skápnum 10 mínútum áður en honum er hellt í glas.

Fyrir hverja: Þá sem kunna að meta örlítið sterkari bjóra.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×