Innlent

Þórdís Lóa útilokar ekki neitt

Margrét Helga Erlingsdóttir skrifar
Þórdís Lóa segir að meirihlutaþreifingar hefjist strax í dag.
Þórdís Lóa segir að meirihlutaþreifingar hefjist strax í dag. Vísir/Margrét Helga
Ég er alvön því að vera sætasta stelpan á ballinu, sjáðu til, segir Þórdís Lóa Þórhallsdóttir, og skellir upp úr þegar hún er beðin um leggja mat á stöðuna sem er uppi að loknum borgarstjórnarkosningum. Viðreisn, með Þórdísi Lóu, í broddi fylkingar, er í lykilstöðu og getur horft bæði til vinstri og hægri þegar kemur að myndun meirihluta í borginni. Þórdís Lóa segir að meirihlutaþreifingar hefjist strax í dag.

Viðreisn er með 8,2% atkvæða og tryggði sér tvo borgarfulltrúa í borgarstjórn, Þórdísi Lóu og Pawel Bartoszek og er stærsti nýi flokkurinn í borgarstjórn.

Þórdís tók undir orð Kristjáns Kristjánssonar, þáttastjórnanda Sprengisands, um að Viðreisn væri í lykilstöðu til að velja á milli Dags B. Eggertssonar og Eyþór Arnalds.

„Já, auðvitað erum við í oddastöðu en það eru miklu fleiri spil á borðinu líka. Við erum ótrúlega ánægð með niðurstöðurnar. Við lítum á þetta sem góðan sigur fyrir okkur. Við komum inn ný, um landið allt og Viðreisn hefur verið að gera frábæra hluti. Það er í rauninni mikið veganesti inn fyrir okkur næstu fjögur ár í sveitarstjórnarmálum.“

Þórdís Lóa segir að samstarfsflötur sé bæði með flokkunum á hægri væng og vinstri væng.Vísir/Margrét Helga
Aðspurð hvort hún gæti hugsað sér að vinna með Eyþóri og Sjálfstæðisflokknum segir Þórdís Lóa: „Já, ég er alveg viss um það,“ og bætir við að sérstaða flokksins sé fólgin í því að hann er á miðju hins pólitíska litrófs.

„Við erum náttúrulega svolítið sérstök því við bæði horfum við á markaðsöflin og atvinnulífið en við erum líka með sterka velferðar-og jafnréttistaug og erum líka mjög sammála Vinstri grænum, sem dæmi, þegar kemur að umhverfismálum,“ segir Þórdís Lóa sem gefur ekkert uppi um það hvort henni hugnast betur að vinna til vinstri eða hægri.

„Við erum, ef ég má nota það orð, „úrbanistar“. Við viljum þétta borgina, við viljum inn með úthverfin, við sjáum fyrir okkur borgarlínu og greiða götu einkabílsins í stokk,“ segir Þórdís Lóa en þessar áherslur eru mjög ráðandi í borgarskipulagi fráfarandi meirihluta í borgarstjórn.

Þórdís Lóa segir að það sé alveg skýrt að Viðreisn gengur óbundin til þessara viðræðna en telur best að allir flokksleiðtogar ræði við sitt bakland áður en ákvarðanir eru teknar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×