Íslenski boltinn

Þór/KA tapaði mikilvægum stigum á heimavelli

Anton Ingi Leifsson skrifar
Þór/KA tapaði mikilvægum stigum á heimavelli í dag.
Þór/KA tapaði mikilvægum stigum á heimavelli í dag. vísir/arnþór
KR náði í gott stig á Akureyri í dag, en liðið gerði 1-1 jafntefli við Þór/KA á Þórsvelli í dag.

Anna Rakel Pétursdóttir varð fyrir því óláni að skora sjálfsmark á 43. mínútu og því komst KR yfir.

0-1 var staðan fyrir KR í hálfleik, en Andrea Mist Pálsdóttir jafnaði á 66. mínútu eftir undirbúning Nataliu Estevea. Lokatölur 1-1.

KR er með tvö stig eftir fyrstu fjóra leikina, en Þór/KA er í sjötta sætinu með fimm stig.

Markaskorarar eru fengnir frá úrslit.net.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×