Lífið

Þingmennskan og hljómsveitarlífið passa vel saman

Guðný Hrönn skrifar
Kolbeinn mun halda uppi stuðinu á Rósenberg í kvöld með hljómsveitinni Slow Train.
Kolbeinn mun halda uppi stuðinu á Rósenberg í kvöld með hljómsveitinni Slow Train. VÍSIR/EYÞÓR
„Hljómsveitarlífið fer vel saman með öllu, þetta snýst bara um að tapa sér ekki í formi og æfingum heldur leyfa flæðinu og stemmningunni að ríkja - dálítið eins og í lífinu sjálfu. Það er fátt betra eftir þus í þingsal, mitt eigið og annarra, en að fara á æfingu og telja í lag,“ segir þingmaðurinn Kolbeinn Óttarsson Proppé en hann mun koma fram á Rósenberg í kvöld ásamt hljómsveit sinni, Slow Train.

Í kvöld mun Slow Train aðeins spila lög Bobs Dylan en nóbelsskáldið á afmæli í dag. „Ójá, og það mörg,“ segir Kolbeinn aðspurður hvort hann eigi sér uppáhaldslag eftir Dylan. „Það fer allt eftir stemmningunni. Í sumar, sól og gleði á New Morning alltaf við, en sæki depurðin að (sem gerist nú ekki oft) er gott að hlýða á Not Dark Yet. Það lag sem lengst hefur fylgt mér sem uppáhaldslag er þó Sad Eyed Lady of the Lowlands.“

Kolbeinn er spenntur fyrir kvöldinu enda er hann vera afar mikill Dylan-aðdáandi.

„En eru allir í raun ekki aðdáendur Dylans? Við Slow Train-liðar erum kannski mismiklir aðdáendur. Allt frá forsprakkanum, sem á líklega flest allt sem hefur verið gefið út með honum, til annarra í bandinu sem kannast nú við fæst lögin sem við tökum. Hvað mig sjálfan varðar er ég nú líklega nær því að vera ofurmikill aðdáandi.“

Spurður nánar út í bandið sjálft, Slow Train, segir Kolbeinn: „Við erum fimm. Forsprakki er Jóhannes Hlynur Sigurðsson, héraðshöfðingi úr Þjórsárdal, sem syngur, spilar á kassagítar og blæs í munnhörpu. Dylan Gnúpverjahrepps, eins og hann hefur verið nefndur. Þaðan erum við bræður líka ættaðir, ég og bassaleikarinn Hrafnkell Á. Proppé. Fulltrúi skógræktenda er svo Hreinn Óskarsson, sem slær strengi rafgítarsins, en hestamenn og aðdáendur hrynfestu eiga sinn fulltrúa í Skeiðamanninum Gunna Jóns.“

Þess má geta að tónleikarnir hefjast klukkan 21.30.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×