Innlent

Þingmenn vilja að lögreglan hljóti verkfallsrétt á ný

Jakob Bjarnar skrifar
Lögreglumenn mótmæla við Stjórnarráðið fyrr í þessum mánuði, en þeir eru afar ósáttir við kjör sín og hvernig miðar í kjaraviðræðum.
Lögreglumenn mótmæla við Stjórnarráðið fyrr í þessum mánuði, en þeir eru afar ósáttir við kjör sín og hvernig miðar í kjaraviðræðum. visir/pjetur
Frumvarp hefur verið lagt fram um breytingar á lögum um lögreglulög í þá veru að lögregluþjónar geti farið í verkfall. Það eru þingmennirnir Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir, Hörður Ríkharðsson og Helgi Hrafn Gunnarsson sem eru flutningsmenn frumvarpsins.

Frumvarpið gengur út á að lögreglumenn hljóti verkfallsrétt á nýjan leik og í greinargerð kemur fram að slíkt fruvart var fyrst flutt á 144. löggjafarþingi (372. mál) af Eyrúnu Eyþórsdóttur og tveimur þingmönnum öðrum úr Vinstri hreyfingunni – grænu framboði. Þingmennirnir vilja meina að lögregluþjónar hafi dregist aftur úr í kjörum og það vilja þeir rekja til þeirrar staðreyndar að þeir njóti ekki verkfallsréttar, sem og samanburðarstéttir.

Hér má sjá frumvarpið og greinargerðina í heild sinni.

„Málið gekk til allsherjar- og menntamálanefndar sem sendi út umsagnarbeiðnir vegna þess. Umsagnir bárust frá Bandalagi háskólamanna, Bandalagi starfsmanna ríkis og bæja, Félagi yfirlögregluþjóna, Landssambandi lögreglumanna, Lögreglufélagi Eyja­fjarðar, Lögreglufélagi Reykjavíkur, Mannréttindaskrifstofu Íslands og Tollvarðafélagi Íslands. Allar umsagnirnar, átta talsins, voru jákvæðar í garð málsins. Í ljósi þess og að jafnbrýnt er nú og þegar frumvarpið var flutt í fyrsta sinn að lögreglumenn endurheimti rétt sinn til að sækja kjarabætur með verkfalli ef nauðsynlegt reynist er það nú endurflutt óbreytt og með upphaflegri greinargerð sem hér fer á eftir,“ segir meðal annars í greinargerðinni.

Verkfallsréttur lögreglumanna var afnuminn með lögum 1986 með breytingum á þágildandi lögreglulögum. Fram til þess tíma höfðu lögreglumenn rétt til verkfalls líkt og aðrar stéttir innan Bandalags starfsmanna ríkis og bæja, reyndar með þeim fyrirvara að skylt var að halda uppi nauðsynlegri öryggisgæslu á meðan á verkfalli stóð.


Tengdar fréttir

„Hendur okkar eru bundnar í bak og fyrir“

Formaður Landssambands lögreglumanna segir að félagsmenn sínir væru að öllum líkindum á leið í verkfallsaðgerðir hefðu þeir verkfallsrétt. Boðað er til baráttufundar í Háskólabíói á morgun.

Þúsund starfsmenn Landspítalans gætu lagt niður störf

Grafalvarleg staða er uppi í kjarasamningsviðræðum SFR, en ef af verkfalli SFR og Sjúkraliðafélags Íslands, munu um eitt þúsund manns á Landspítalanum leggja niður störf. Atkvæðagreiðsla um verkfallsaðgerðir er hafin og lýkur á þriðjudag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×