Innlent

Þingmaður Sjálfstæðisflokksins: RÚV beri skylda til að tala um þjóðtrúna

Bjarki Ármannssson skrifar
Ásmundur telur að RÚV hafi skyldum að gegna gagnvart kristindóminum í landinu.
Ásmundur telur að RÚV hafi skyldum að gegna gagnvart kristindóminum í landinu. Vísir/GVA/GVA
Fólk á vinstri væng stjórnmálanna hóf fyrir nokkrum árum árás á iðkun kristinnar trúar í grunnskólum Reykjavíkur. Nú ríður Ríkisútvarpið sama hesti með ákvörðun um að hunsa vilja 86 prósenta landsmanna.

Þetta segir Ásmundur Friðriksson, alþingismaður Sjálfstæðisflokksins, í pistli sínum „Þjóðmenning og bænir“ sem birtur var á ýmsum miðlum fyrr í vikunni. Tilefni pistilsins var sú ákvörðun Ríkisútvarpsins, sem síðan hefur verið kölluð til baka, að taka af dagskrá Rásar eitt liðina Orð dagsins og morgunbænir.

Ásmundur var gestur Bítisins í morgun og ítrekaði þar þá skoðun sína að það sé skylda RÚV að fjalla um kristna trú, sem hann segir mjög fasta „í þjóðarsálinni.“

„Í ljósi þeirra viðbragða sem ég hef fengið við þessari grein er ljóst að þetta er nær fólki en maður hefði kannski haldið,“ segir Ásmundur. „Ég fór til dæmis í gærmorgun á vinnustað í Vestmannaeyjum þar sem voru svona tólf, fimmtán karlar á mínu reki. Þeir eru kannski ekki hverja helgi í kirkju en allir hafa þeir lent í því að leita í trúna í erfiðleikum lífsins eins og maður hefur lent í sjálfur.“

Hann kveðst ánægður með að stjórnendur RÚV hafi séð „villu síns vegar.“

„Ég held að þeir hafi áttað sig á því að Ríkisútvarpið hafi gríðarlega miklum skyldum að gegna gagnvart fólkinu í landinu og ekki síst kristindóminum, sem er nú okkar þjóðartrú,“ segir hann.

Í pistli sínum bendir hann á það að nýr útvarpsstjóri, Magnús Geir Þórðarson, hafi verið ráðinn á „vakt“ ríkisstjórnar Sjálfstæðisflokksins sem alla tíð hafi staðið vörð um þjóðkirkjuna.

„Þetta er auðvitað bara mín skoðun,“ segir hann. „Ég vil nú ekki segja að ég sé að vega að sjálfstæði stofnunarinnar með því að hafa þessa skoðun. En ég er alveg sammála því að ef Ríkisútvarpið getur ekki sinnt þeim skyldum að tala um okkar þjóðartrú og halda henni til haga, þá er stoðum hennar kippt undan henni. Þá segi ég, ef þetta á að vera einhvers lags menningarvitaútvarp sem er fyrir fáa, þá þarf auðvitað að skoða það.“

Viðtalið við Ásmund í heild sinni má heyra í spilaranum hér fyrir ofan.


Tengdar fréttir

Efast ekki um að fólk eigi eftir að sakna bænanna

Dagskrárstjóri Rásar eitt segir litla hlustun á bænir. Dómkirkjuprestur segir bænalesturinn þjónustu við fólkið í landinu. Formaður Landssambands eldri borgara vill að biskup og prestar landsins mótmæli.

Borgarfulltrúi saknar bænanna

Björk Vilhelmsdóttir, fulltrúi Samfylkingarinnar í borgarstjórn, segir bænina ætíð af hinu góða.

Síminn stoppaði ekki hjá Ellimálaráði

Símtölum frá eldri borgurum rigndi yfir Ellimálaráð Reykjavíkurprófastsdæma eftir að Rás 1 ákvað að hætta lestri bæna. Ákvörðunin var dregin til baka í gær. Fyrir sjö árum fundaði ráðið með þáverandi útvarpsstjóra með góðum árangri.

Bænirnar hverfa af RÚV: "Áfall fyrir kristindóminn í landinu“

Vígslubiskupinn í Skálholti er afar óhress með Ríkisútvarpið fyrir að ætli að fella niður morgunbæn, morgunandakt og orð kvöldsins á Rás eitt í lok mánaðarins. "Afar lítil hlustun á þessa dagskrárliði“, segir dagskrárstjóri rásarinnar.

Bænirnar verða áfram á RÚV

Magnús Geir Þórðarson, útvarpsstjóri, hefur tekið þá ákvörðun að halda áfram með dagskráliðina Orð kvöldsins og Morgunbæn á Rás 1.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×