Lífið

Þetta var fjarlægur draumur

Guðrún Jóna Stefánsdóttir skrifar
Hljómsveitina Rugl skipa þær,  Ragnheiður María Benediktsdóttir og Guðlaug Fríða Helgadóttir Folkmann. Fréttablaðið/Eyþór.
Hljómsveitina Rugl skipa þær, Ragnheiður María Benediktsdóttir og Guðlaug Fríða Helgadóttir Folkmann. Fréttablaðið/Eyþór.
„Hljómsveitin varð til þegar við sátum saman á kaffihúsi í fyrravetur.Guðlaugu Fríðu langaði til þess að taka þátt söngkeppninni Rófunni í Hagaskóla, sem er undankeppni fyrir Samfés. Okkur gekk alveg frábærlega og lentum í öðru sæti“ segir Ragnheiður María Benediktsdóttir, en saman skipa þær vinkonurnar hljómsveitina Rugl, sem kemur til með að hita upp fyrir eitt stærsta atriði á tónlistarhátíðinni Iceland Airwaves, sem fram fer í nóvember.

Fljótlega eftir undankeppni Samfés fengu stelpurnar mikla hvatningu til þess að taka þátt í Músíktilraunum. Þær fengu talsverða athygli fyrir atriði sitt sem hafnaði í úrslitum, og er óhætt að segja að boltinn hafi farið að rúlla eftir það.

„Við ákváðum bara að slá til, þetta var reynsla og virkilega skemmtilegt að taka þátt. Þegar við vorum að ganga frá dótinu okkar eftir keppnina, kom Grímur Atlason, framkvæmdastjóri Airwaves, og spurði okkur hvort við værum til í að koma fram á Airwaves,“ segja þær glaðar.

Rugl kemur til með að spila talsvert mikið á Airwaves í ár bæði á dagskránni sjálfri og hinni svokölluðu off-venue dagskrá, sem fram fer samhliða hátíðinni

„Við erum að fara að hita upp fyrir PJ Harvey, þetta er bara alveg geggjað,“ segir Ragnheiður.

„Ég man eftir því að hafa verið stödd á tónleikum með hljómsveitinni Hjaltalín og hugsaði með mér, að þegar ég yrði stór ætlaði ég að spila á þessari hátíð. Mig grunaði ekki að það kæmi að því svona snemma, þetta var svo fjarlægur draumur,“ segir Guðlaug.

En hvernig tónlist spilið þið?

„Tónlistin sem við spilum er eiginlega svona hálfgert indípopp, það fer eftir árstíðum, okkur þykir frekar erfitt að útskýra nákvæmlega hvernig tónlist þetta er sem við spilum. Við syngjum báðar og spilum svo á hljómborð og gítar. Eins og staðan er núna hittumst við alla daga og æfum. Við erum mjög spenntar og teljum næstum því niður dagana,“ segja þær stöllur. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×