Lífið

Þessi rotta vill sko alls ekki vera skítug

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Úkraínumaðurinn Andrew Zhdanov birtir ansi hreint hressilegt myndband á Facebook-síðu sinni.

Myndbandið skírir hann einfaldlega: Sköllótt rotta í sturtu en í því sést rotta baða sig hátt og lágt í baðherbergisvaski.

Ekki er ljóst hvort rottan er í eigu Andrews en myndbandið hefur farið á gífurlegt flug á samfélagsmiðlunum.

Í myndbandinu hljómar einnig lagið Splish Splash sem Bobby Darin gerði frægt og gæti það ekki passað betur við rottuna með hreinlætisæðið.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×