Fótbolti

Þessi fótboltakona plataði strákana upp úr skónum | Myndband

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Lisa Zimouche hjá PSG.
Lisa Zimouche hjá PSG. Mynd/Youtube
Franska fótboltakonan Lisa Zimouche er svo leikinn með knöttinn að hún fær boltann næstum því til að tala.

Þetta fengu framtíðarleikmenn franska félagsins Paris Saint Germain að kynnast á dögunum.

Lisa Zimouche er svokallaður „Freesstyler“ og vinnur fyrir sér með því að leika sér með knöttinn. Hún er því að ekki að spila venjulega fótboltaleiki þrátt fyrir að hún geti nánast gert það sem henni langar til með boltann.  Hún er aðeins sautján ára gömul og á því heldur betur framtíðina fyrir sér í þessu.

Lisa getur gert hinar ýmsu kúnstir, sem hún sýndi hjá PSG og fékk gott klapp frá strákunum í unglingaliði Paris Saint Germain.

Stemmningin í hópnum varð þó fyrst skemmtileg þegar Lisa Zimouche fór að plata þá hvern á fætur öðrum upp úr skónum.  

Liðsfélagarnir misstu sig nefnilega þegar hún klobbaði þá hverja á fætur öðrum eins og sjá má í þessum skemmtilega myndbandi frá Youtube-síðu franska félagsins.  

Tilþrif Lisu Zimouche eru stórkostleg en viðbrögð strákanna eru jafnvel enn betri eins og sjá má í myndbandinu hér fyrir neðan. Enn neðar má sjá þegar hún hitti Brasilíumanninn Ronaldhinho.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×