Innlent

Þarf að yfirgefa landið á næstu 30 dögum

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Amanda Wood.
Amanda Wood. Mynd/Amanda Wood
Þrír lögregluþjónar komu heim til Amöndu Wood í kvöld og afhentu henni bréf þar sem henni er tilkynnt að hún hafi 30 daga til að yfirgefa Ísland.

„Í bréfinu segir að ef ég fari ekki úr landi á næstu 30 dögum að þá verði mér fylgt úr landi. Þá má ég heldur ekki koma aftur til Íslands næstu tvö árin,“ segir Amanda í samtali við Vísi.

Vísir sagði fyrr í dag frá máli Amöndu. Hún er bandarísk en giftist íslenskum manni árið 2011 sem hóf að beita hana ofbeldi stuttu eftir brúðkaupið að hennar sögn.

Þau bjuggu í Noregi í um eitt ár áður en þau fluttu aftur til Íslands árið 2012. Þá kom í ljós að eiginmaður Amöndu var ekki skráður til heimilis hér á landi og hún gat því ekki skráð sig löglega sem íbúi hér.

Sumarið 2013 skildi Amanda við manninn auk þess sem hún kærði hann til lögreglu vegna ofbeldisins sem hann á að hafa beitt hana á meðan þau voru gift. Hún sótti einnig um dvalar-og atvinnuleyfi hér og útvegaði alla nauðsynlega pappíra til þess en henni hafði meðal annars verið boðið starf.

Útlendingastofnun synjaði Amöndu hins vegar um atvinnu-og dvalarleyfi á grundvelli þess að hún hefur ekki næg tengsl við landið. Hér á hún fjölda vina sem hafa stutt við bakið á henni. Þá á hún einnig kærasta.

Amanda kærði úrskurð Útlendingastofnunar til innanríkisráðuneytisins en ráðuneytið staðfesti það að henni skyldi vísað úr landi.


Tengdar fréttir

Vill ekki að sér sé refsað fyrir eitthvað sem er ekki henni að kenna

Amanda Wood giftist íslenskum manni sem hóf að beita hana ofbeldi stuttu eftir brúðkaupið. Nú, tæpum tveimur árum eftir að hún fór frá manninum vegna ofbeldisins, á að vísa henni frá Íslandi á grundvelli þess að hún hafi ekki næg tengsl við landið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×