Glamour

Það var ást við fyrstu sýn hjá Jared Leto og Gucci

Ritstjórn skrifar
Jared Leto glæsilegur í draumaflíkinni sinni.
Jared Leto glæsilegur í draumaflíkinni sinni. Mynd/Getty
Jared Leto er mikill aðdáandi Gucci og er Alessandro Michele, yfirhönnuður merkisins, er einnig mikill aðdáandi leikarans. Leto klæðist yfirleitt Gucci á rauðadreglinum og mætir iðulega á tískusýningar þeirra. 

Kostuleg mynd hefur nú komist upp á yfirborðið þar sem má sjá Jared heillast af einu dressinu á Gucci tískusýningu. Það sem gerir myndina enn skemmtilegri er að hann klæddist einmitt því dressi á frumsýningu nýjustu myndar sinnar, Suicide Squad.

Myndirnar af augnablikinu sem Jared verður ásfanginn af fötunum má sjá hér fyrir neðan.

Vá, þetta er það sem maður kallar ást við fyrstu sín.





×