Innlent

Telur laxastofninn í Þjórsá ekki í hættu

Jón Gunnarsson formaður atvinnuveganefndar telur lífríki Þjórsár ekki stefnt í hættu með Hvammsvirkjun og þær mótvægisaðgerðir sem ráðist verði í vegna virkjunarinnar muni vernda stofninn.

Í fréttum okkar í gær sagði Orri Vigfússon, formaður Verndarsjóðs villtra laxastofna, að raunverulegt mat á áhrifum Hvammsvirkjunar á laxastofninn hafi ekki farið fram líkt og lög geri ráð fyrir en samþykkt var á Alþingi að færa Hvammsvirkjun í nýtingarflokk rammaáætlunnar.

„Laxastofninn í Neðri-Þjórsá er sá mest rannsakaðsti hér á landi og þó víðar væri leitað. Það hafa verið skrifaðar skýrslur á annað þúsund blaðsíður um laxastofninn í Þjórsá af hálfu veiðimálastofnunar. Það hefur verið gripið til mótvægisaðgerða við hönnun virkjunarinnar einmitt með tilliti til laxastofnins bæði til að greiða fyrir uppgöngu laxins og eins til að greiða fyrir niðurgöngu seiða.“

Formaður atvinnuveganefndar segir það í höndum skipulagsstofnunar að ákvarða um það hvort þurfi að endurtaka umhverfismat sem gert var á Þjórsá árið 2002 og Orri vill meina að sé úrelt að mörgu leyti og þurfi að gera upp á nýtt.

„Ég tel að þær mótvægisaðgerðir sem hafa verið hannaðar í tengslum við virkjun í Neðri- Þjórsá muni mæta þeim kröfum sem við gerum til að lágmarka áhrif á laxastofninn, það er gert samkvæmt nýjustu hönnun á slíkum mannvirkjum erlendis frá.

Jón telur að þær mótvægisaðgerðir sem fara eigi í muni vernda laxastofninn.

„Þó aldrei sé hægt að útiloka neitt algjörlega þá sé samkvæmt reynslu annars staðar frá mjög líklegt að þessar mótvægisaðgerðir muni duga þeim kröfum sem við setjum vegna þessa.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×