Lífið

Tekur sér frí frá leiklist

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Kristen er hvað þekktust fyrir að leika í Twilight-myndunum.
Kristen er hvað þekktust fyrir að leika í Twilight-myndunum. vísir/getty
Twilight-stjarnan Kristen Stewart segir í viðtali við USA Today að hún ætli að taka sér frí frá leiklistinni.

„Ég ætla að taka mér pásu því ég er búin að vera að vinna í tvö ár. Ég er leikkona og það er mitt listform og af því að ég byrjaði svo ung var ég alltaf hrædd og leið eins og ég væri ófullnægjandi þegar ég hugsaði um önnur listform sem mig langaði til að kanna,“ segir leikkonan.

„Ég ætla að fara í langt frí. Ég ætla að kaupa íbúð og vinnustofu í Los Angeles og ég ætla að búa eitthvað til með höndunum. Ég tók þessa ákvörðun fyrir nokkrum vikum síðan,“ bætir Kristen við. Hún ætlar þó ekki að slaka á í þessu langa fríi.

„Ég elska að vinna og það mun fylgja mér til æviloka. Ég elska erfiðisvinnu.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×