Lífið

Teiknaði Eurovision: Vinsælasta myndin hápólitísk

Nanna Elísa Jakobsdóttir skrifar
Rán teiknaði keppnina í gær.
Rán teiknaði keppnina í gær. Vísir/Instagram/Sigríður Þóra
Rán Flygenring teiknari vakti athygli margra í gærkvöldi þegar hún tók sig til í þriðja skiptið og teiknaði Eurovision keppnina. Hún birti myndirnar á Instagram á meðan á keppninni stóð.

„Maður nær náttúrulega ekki mikið að heyra af lögunum. En þetta er var mjög gaman og miklar undirtektir.“

voting pattern theory #eurovision #júróvisjón #livefeed #illustrated #12stig #eurovision2015 #esc

A photo posted by Rán Flygenring (@ranflygenring) on

Vinsælasta mynd Ránar var hápólitísk og í henni fólst ádeila á stigagjöf keppninnar. Rán segir vinsælustu myndirnar oftast fela í sér ádeilu. „Ég fékk í fyrsta skiptið svona neikvætt komment sem mér fannst æðislegt,“ sagði Rán hæstánægð. Neikvæðu ummælin voru á mynd af lettnesku söngkonunni þar sem hún sést syngja baðandi út öllum örmum, öllum níu. „Ég hef kannski verið eitthvað móðgandi við það framlag,“ viðurkenndi Rán. „Það er náttúrulega ekki hægt að þóknast öllum.“

Rán er starfandi teiknari en hún hóf að teikna viðburði af þessu tagi þegar hún starfaði sem hirðteiknari Reykjavíkurborgar sumarið 2011. „Þetta er hluti af svona hliðarverkefni sem ég hef verið að vinna í svolítinn tíma að teikna meira fréttatengt efni.“ Rán kallar þennan teiknistíl „illustrated journalism“ eða teikniblaðamennsku.

flott lattvía #eurovision #júróvisjón #livefeed #illustrated #12stig #eurovision2015

A photo posted by Rán Flygenring (@ranflygenring) on

En fellur þetta undir skopmyndateikningar?



„Þetta er ekki langt frá skopmyndateikningu en það er afar takmarkandi orð,“ svaraði Rán eftir nokkra umhugsun.

Rán hefur teiknað ráðstefnu, brúðkaup, lífið í miðborg Reykjavíkur, hönnunarmars og meira að segja heimsókn í SOS barnaþorp í Zimbabve.

smá kjólavesen hjà greece #eurovision #júróvisjón #livefeed #illustrated #12stig #eurovision2015

A photo posted by Rán Flygenring (@ranflygenring) on

„Það er alls konar sem hægt er að skrifa og svo eru ljósmyndir. Teikning er þarna á milli. Ljósmyndir eru oft teknar sem raunveruleiki þrátt fyrir að hann sé ekki endilega réttur. Hins vegar er enginn að ætlast til þess að teiknarinn teikni raunveruleikann.

Fólk veit að þetta eru skilaboð teiknarans. Þannig felst í teikningu meira frelsi myndi ég segja, já.“

Eurovision söngvakeppnin var góð teikniæfing. Það þarf að vinna ansi hratt til þess að halda í við keppnina og því gefst lítill tími fyrir ritskoðun. Rán er stödd í Eistlandi um þessar mundir en hún teiknaði einmitt eistneska atriðið í gær.

„Það var langskemmtilegast að teikna stóru konuna. Hvaðan var hún aftur?“ spyr Rán og á við söngkonuna Bojana Stamenov fá Serbíu. „Hún komst ekki fyrir á einni mynd,“ segir Rán glettin og hlær.

serbia pt 1/2 #eurovision #júróvisjón #livefeed #illustrated #12stig

A photo posted by Rán Flygenring (@ranflygenring) on

serbia pt. 2/2 #eurovision #júróvisjón #livefeed #illustrated #12stig

A photo posted by Rán Flygenring (@ranflygenring) on


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×