Glamour

Taylor Swift og Drake byrjuð saman?

Ritstjórn skrifar
Ætli þetta sé þá ekki ólíklegasta samsetning allra tíma?
Ætli þetta sé þá ekki ólíklegasta samsetning allra tíma? Mynd/Getty
Það voru ansi einkennilegar fréttir að brjótast upp á yfirborðið núna í kvöld. Talið er að rapparinn Drake og söngkonan Taylor Swift séu byrjuð að stinga saman nefjum. 

Samkvæmt vitnum voru þau ansi rómantísk saman í þrítugsafmæli Drake um helgina. Sagt er að hann hafi meira að segja kynnt hana fyrir foreldrum sínum sem voru á staðnum. 

Drake er nýhættur með Rihanna og Taylor hætti með leikaranum Tom Hiddleston fyrir nokkrum mánuðum. Þau verða að teljast afar ólíklegt par af ýmsum ástæðum en það verður spennandi að sjá hvort það verði eitthvað úr þessu. 

Þarna má sjá þau saman á VMA verðlaununum 2013.Mynd/Getty





×