Lífið

Taylor Swift bætist við í The Voice

Taylor Swift
Taylor Swift Vísir/Getty
Söngkonan Taylor Swift verður svokallaður ráðgjafi í þáttum NBC-sjónvarpsstöðvarinnar The Voice ef marka má Us Weekly, slúðurmiðil í Bandaríkjunum.

Hin 24-ára gamla Swift hefur verið orðuð við sjöundu seríu þáttana sem ráðgjafi þeirra sem taka þátt og syngja.

Aðrir ráðgjafar í sömu seríu verða Stevie Nicks, Gavin Rossdale, hljómsveitin Little Big Town og Alicia Keys.

Swift kemur einnig til með að koma fram á sviði með þjálfurum the Voice, sem eru eftir sem áður Adam Levine og Blake Shelton, ásamt Gwen Stefani og Pharrell Williams sem nýlega bættust í hópinn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×