Íslenski boltinn

Tanja bætist í hóp umboðsmanna fyrst kvenna

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Mynd/Aðsend
Tanja Tómasdóttir hlaut í vikunni réttindi sem umboðsmaður knattspyrnumanna fyrst íslenskra kvenna.

Tanja er 24 ára lögfræðinemi sem er einnig í stjórn Leikmannasamtaka Íslands, sem stofnuð voru fyrr í vetur.

Hún skrifaði BA-ritgerð sína í lögfræði um umboðsmenn knattspyrnumanna og vinnur nú að mastersritgerð um réttarstöðu íþróttafólks.

Hún er níundi einstaklingurinn sem hlýtur nafnbótina KSÍ umboðsmaður, samkvæmt heimasíðu sambandsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×