Innlent

Tæknimenn RÚV greiða atkvæði um verkfallsboðun

Gissur Sigurðsson skrifar
VÍSIR/GVA
Tæknimenn Ríkisútvarpsins, sem eru í Rafiðnaðarsambandinu, greiða atkvæði um verkfallsboðun á fundi í dag, eftir að enginn árangur náðist á samningafundi í gær.

Ríkissáttasemjari hefur ekki boðað til nýs fundar.

Samningaviðræðum Félags framhaldsskólakennara og ríkisins miðar hinsvegar vel og búast samningamenn við því að nýr samningur verði undirritaður í dag, ef ekkert óvænt kemur upp á úr þessu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×