Fótbolti á Norðurlöndum

Fréttamynd

Garðar skoraði en Norrköping tapaði

Garðar Gunnlaugsson skoraði fyrir Norrköping í kvöld þegar liðið tapaði 1-2 á heimavelli fyrir Bunkeflo. Þetta var leikur í næstefstu deild Svíþjóðar en Norrköping er í efsta sæti deildarinnar með níu stiga forskot og er þegar komið upp.

Fótbolti
Fréttamynd

Gautaborg á toppnum á markatölu

Tveir leikir fóru fram í sænsku úrvalsdeildinni í kvöld en spennan í deildinni er gríðarleg. Ragnar Sigurðsson og Hjálmar Jónsson spiluðu allan leikinn fyrir Gautaborg sem vann 3-0 sigur á Hammarby og komst á toppinn.

Fótbolti
Fréttamynd

Gautaborg náði efsta sætinu

IFK Gautaborg vann 1-0 útisigur á grönnum sínum í GAIS í sænsku úrvalsdeildinni í kvöld. Eina mark leiksins kom strax á 2. mínútu. Með þessum sigri komst Gautaborg í efsta sæti deildarinnar á markatölu en liðið er með 37 stig líkt og Djurgården.

Fótbolti
Fréttamynd

Kjartan hefur brotið ísinn

Margir Íslendingar komu við sögu í sænska fótboltanum í kvöld en þá var leikið í tveimur efstu deildunum þar í landi. Sigurður Jónsson og lærisveinar hans í Djurgården gerðu jafntefli 1-1 við AIK í kvöld.

Fótbolti
Fréttamynd

Gunnar Heiðar skoraði fyrir Våleranga

Íslenski landsliðsmaðurinn Gunnar Heiðar Þorvaldsson hefur skorað sitt fyrsta mark fyrir norska liðið Våleranga. Gunnar skoraði síðara mark liðsins í 2-0 sigri á Fredrikstad í norsku úrvalsdeildinni í kvöld.

Fótbolti
Fréttamynd

Stefán fyrirliði Bröndby

Stefán Gíslason verður fyrirliði Bröndby í stórleiknum gegn FCK á sunnudag í dönsku úrvalsdeildinni. Stefán mun leysa Per Nielsen af sem er meiddur. Þetta er í fyrsta sinn sem Stefán setur upp fyrirliðabindið fyrir lið sitt.

Fótbolti
Fréttamynd

Stefán Þórðarson á heimleið

Skagamaðurinn Stefán Þórðarson hefur gefið það út að hann ætli að flytja aftur heim til Íslands eftir að leiktíð lýkur í 1. deildinni í Svíþjóð. Stefán er leikmaður Norrköping, sem er á góðri leið með að tryggja sér sæti í úrvalsdeildinni, en honum þykir kominn tími til að breyta til.

Fótbolti
Fréttamynd

Veigar Páll fær afburðadóma í Noregi

Veigar Páll fór mikinn með Stabæk í norsku úrvalsdeildinni um helgina. Hann skoraði þrennu í 5-1 sigri liðsins á Odd Grenland og fékk afburðadóma fyrir í norsku pressunni.

Fótbolti
Fréttamynd

Stefán stöðvaði slagsmál liðsfélaga sinna

Ekkert gengur hjá danska úrvalsdeildarfélaginu Bröndby. Liðið tapaði 3-0 á útivelli fyrir AaB um helgina. Eftir þriðja markið sinnaðist tveimur leikmönnum liðsins og mátti Stefán Gíslason ganga á milli þeirra.

Fótbolti
Fréttamynd

Hann ætlar að ná úr mér geðveikinni

Sænskir fjölmiðlar greina frá því í dag að Sigurður Jónsson, þjálfari toppliðs Djurgarden, njóti nú aðstoðar íþróttasálfræðings til að "ná úr sér geðveikinni" eins og hann orðar það sjálfur. Sigurður hefur verið gagnrýndur nokkuð af dómurum og meðspilurum fyrir skapsmuni sína og ætlar að reyna að vinna bót á því.

Fótbolti
Fréttamynd

Noregur upp í annað sætið

Norska landsliðið komst upp í annað sætið í C-riðli undankeppni Evrópumótsins með því að leggja Moldavíu 1-0 á útivelli í kvöld. Steffen Iversen skoraði eina mark leiksins.

Fótbolti
Fréttamynd

Djurgården á toppinn

Nokkrir leikir fóru fram í norsku og sænsku knattspyrnunni í gærkvöld. Lærisveinar Sigurðar Jónssonar í Djurgarden náðu eins stigs forystu á toppi sænsku deildarinnar með góðum 4-1 útisigri á Helsingborg.

Fótbolti
Fréttamynd

Kristán Örn skoraði í naumum sigri Brann

Varnarmaðurinn sterki Kristján Örn Sigurðsson skoraði í dag fyrir Brann í naumum sigri liðsins á Sandefjord í norsku úrvalsdeildinni. Mark Kristjáns kom á 29. mínútu leiksins og það dugði Brann til sigurs og liðið því enn í efsta sæti norsku deildarinnar með 39 stig.

Fótbolti
Fréttamynd

Íslendingar á skotskónum í Svíþjóð

Stefán Þórðarson skoraði mark IFK Norrköping í 1-1 jafntefli gegn IF Sylvia í dag í næstefstu deild Svíþjóðar. Stefán spilaði allan leikinn í framlínunni en Garðar B. Gunnlaugsson kom inn á sem varamaður. Norrköping er sem fyrr langefst í deildinni, eða með 15 stiga forskot á næstu lið. Þá skoraði Helgi Valur Daníelsson fyrir Östers IF í 1-1 jafntefli gegn Landskrona.

Fótbolti
Fréttamynd

Umeå vann uppgjörið

Umeå á sænska meistaratitilinn vísan þriðja árið í röð eftir 2-0 sigur á JdB Malmö í uppgjöri efstu liðanna í sænsku úrvalsdeildinni í knattsyrnu kvenna í gær.

Fótbolti
Fréttamynd

Ármann Smári skoraði fyrir Brann í sigri á Suduva

Ármann Smári Björnsson skoraði fyrra mark Brann í 2-1 sigri á Suduvas í fyrrli leik liðanna í forkeppni Evrópukeppni félagsliða. Ármann skoraði markið á 24. mínútu leiksins. Robbie Winters bætti öðru marki við fyrir Brann áður en Jose Negreiros jafnaði leikinn fyrir Suduvas. Kristján Örn Sigurðsson og Ólafur Örn Bjarnason spiluðu allan leikinn fyrir Brann ásamt Ármanni Smára.

Fótbolti
Fréttamynd

Mark Hannesar dugði skammt

Hannes Sigurðsson skoraði fyrir Viking í Stafangri þegar liðið mætti Sandefjörd í norsku úrvalsdeildinni í dag. Hannes kom Vikingi yfir á 9. mínútu en Sandefjörd skoraði síðan 4 mörk og vann leikinn 4-1.

Fótbolti
Fréttamynd

Ráðist á Ravelli í Gautaborg

Fyrrverandi markvörður sænska landsliðsins í fótbolta, Thomas Ravelli, varð fyrir árás í gær í skemmtigarðinum Liseberg í Gautaborg. Sá sem réðist á Ravelli hafði skömmu áður verið hent út af veitingastaðnum Tyrolen. Fyrir utan rakst hann á Thomas Ravelli og sló til hans. Ravelli komst óskaddaður frá árásinni sem minnir óneitanlega á tilefnislausa árás á landsliðsfyrirliðann Eið Smára Guðjohnsen í Reykjavík í síðustu viku. Ravelli gerir lítið úr atvikinu í samtali við sænska blaðið Expressen. Líkt og landsliðsfyrirliðinn ákvað Ravelli að kæra ekki til lögreglu.

Fótbolti
Fréttamynd

Veigar Páll og félagar steinlágu

Rosenborg burstaði Stabæk 3-0 í norsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í gærkvöldi. Veigar Páll Gunnarsson lék allan leikinn með Stabæk og fékk að líta gula spjaldið. Brann er í 1. sæti deildarinnar með 32 stig en liðið mætir Valeringa í Osló nú síðdegis. Stabæk er enn í öðru sæti deildarinnar með 29 stig en Viking á möguleika á því að komast í annað sætið með sigri á Sandefjörd í dag.

Fótbolti
Fréttamynd

Ármann Smári og Kristján Örn skoruðu í sigri Brann

Norska liðið Brann sigraði Camarthen Town 6-3 í undankeppni Evrópukeppni félagsliða í dag. Brann vann fyrri leikinn 8-0 og því samanlagt 14-3 eftir leikina tvo. Ármann Smári Björnsson og Kristján Örn Sigurðsson skoruðu sitthvort markið fyrir Brann, en þeir skoruðu einnig báðir í fyrri leiknum.

Fótbolti
Fréttamynd

Stefán með tvö í sigri á Ljungskile

Stefán Þórðarson skoraði bæði mörk Norrkoping í 2-0 sigri gegn Ljungskile í næstefstu deild í Svíþjóð. Stefán skoraði bæði mörkin í fyrri hálfleik. Stefán var ásamt Garðari Gunnlaugssyni í byrjunarliðinu en Garðar var tekinn út af í fyrri hálfleik. Norrkoping er sem fyrr í efsta sæti deildarinnar með 41 stig eftir 16 leiki, 12 siga forskot á GIF Sundsvall sem er í öðru sæti.

Fótbolti
Fréttamynd

Stefán Þórðarson skoraði í tapi gegn Ljungskile

Norrkoping tapaði í dag sínum fyrsta leik í næstefstu deild Svíþjóðar. Þrátt fyrir að vera tveimur fleiri síðustu 20 mínúturnar bað liðið lægri hlut fyrir Ljungskilde, 2-1. Stefán Þórðarson kom Norrkoping yfir á 64. mínútu en Andreas Kristoffersson tryggði Ljungskilde sigurinn með tveimur mörkum.

Fótbolti
Fréttamynd

Þetta var ekkert stelpumark

Landsliðskonan Dóra Stefánsdóttir skoraði eitt af mörkum ársins í sænska kvennaboltanum þegar hún innsiglaði 4-0 sigur Ldb Malmö á Hammarby í fyrradag. Á heimasíðu Malmö segir að annað eins mark hafi ekki sést á IP-leikvanginum frá því 1994, þegar gamla kempan Malin Lundgren skoraði fyrir karlalið félagsins í ónefndum leik.

Fótbolti