Héðan og þaðan

Fréttamynd

Pearl á stærð við venjulegan gemsa

BlackBerry Pearl 8100 er nýr farsími sem hér er kominn í sölu. BlackBerry símarnir hafa notið vinsælda meðal fólks sem komast þarf bæði í tölvupóst og skrifstofuhugbúnað hvar sem sem það er á ferðinni.

Viðskipti erlent
Fréttamynd

Með sérsniðin viðskiptakerfi

Hugbúnaðarfyrirtækið Merkur Point hefur þróað sérsniðin viðskiptakerfi fyrir verslanir sem eykur hraða og öryggi í afgreiðslu. Fyrirtækið vinnur að innleiðingu kerfisins hjá matsölustaðnum Nings og víðar.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Útgefendur saka MySpace um brot

Bandaríska útgáfufyrirtækið Universal Music hefur stefnt netveitunni MySpace.com vegna brota á höfundarréttarlögum. Netveitan býður netverjum upp á að búa til eigin vefsvæði auk þess sem hægt er að leita eftir tónlistar- og myndskrám á netinu, sem þeir geta horft og hlustað á og deilt með öðrum.

Viðskipti erlent
Fréttamynd

Löggild netkvittun hjá Atlantsolíu

Atlantsolía tók á föstudag í síðustu viku í notkun nýja gerð kvittana sem fást þegar dælulykill fyrirtækisins er notaður. Dælan sendir kvittun fyrir eldsneytiskaupum sem PDF-skrá í viðhengi í tölvupósti og eru þær gildir reikningar í bókhaldi fyrirtækja og einstaklinga.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Gjörbreyting hjá Sterling

Nærri fimm milljarða króna bati hefur orðið á afkomu norræna lággjaldaflugfélagsins Sterlings, dótturfélags FL Group, fyrir afskriftir á þessu ári samanborið við síðasta ár. Ef einskiptiskostnaður er frátalinn er batinn enn meiri.

Viðskipti erlent
Fréttamynd

Krónan veiktist fyrir símafund

Krónan veiktist í gær um 1,9 prósent þegar hún fór upp fyrir gengisvísitöluna 120 og endaði í 121,8. Bæði greiningardeildir Kaupþings og Landsbankans benda á að veikinguna megi rekja til skýrslu matsfyrirtækisins Fitch fyrir helgina þar sem lánshæfishorfur ríkisins voru áfram sagðar neikvæðar.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Útboð Kaupþings hafið

Kaupþing hefur hafið sölu nýrra hlutabréfa, sem verður beint til erlendra fjárfesta, í því skyni að styrkja eiginfjárgrunn bankans og styðja við frekari útrás. Samsvarar útgáfan um tíu prósenta aukningu hlutafjár.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Markaðssettir erlendis

Erlend alþjóðafyrirtæki vilja ekkert frekar en að geta borgað á einum stað í lífeyrissjóðakerfi sem hentar öllum starfsmönnum sínum. Þarna er tækifæri fyrir íslenska sjóði, sem eru með þróað kerfi sem hentar vel breyttum aðstæðum á alþjóðlegum lífeyrismarkaði, en þær stafa af því að fólk lifir lengur og fer fyrr á eftirlaun. Þetta sagði Tryggvi Þór Herbertsson, prófessor við Háskóla Íslands.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Símakostnaður lækkaður með netsíma

Vodafone hefur tekið í notkun þjónustu sem nefnist Netsíminn. Þjónustan er sögð geta stórlækkað símakostnað fólks. Með Netsímanum er hringt úr nettengdri tölvu og hægt að hringja ókeypis í alla heimasíma, auk þess sem fólk í útlöndum getur hringt í netsíma hér án tilkostnaðar.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Fimmtungsfjölgun gistinótta

Umsvif í ferðaþjónustu hafa aukist umtalsvert á milli ára samkvæmt upplýsingum frá Ferðamálastofu. Gistinætur á hótelum í september í ár voru 114.600 en voru 93.000 í sama mánuði í fyrra, sem er 22 prósenta fjölgun.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

EGO fær viðurkenningu Orkuseturs

Orkusetur veitir EGO sjálfsafgreiðslustöðvunum viðurkenningu fyrir lofsvert frumkvæði að því að draga úr eldsneytisnotkun. Framlag EGO felst í því að bjóða ökumönnum tölvustýrða mælingu og loftjöfnun á hjólbörðum bifreiða á öllum EGO stöðvunum.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Faxaflóahafnir taka upp Vigor-kerfi

Faxaflóahafnir og TM Software hafa undirritað samning um umfangsmikla innleiðingu á Vigor-viðskiptahugbúnaði hjá Faxaflóahöfnum. Með nýja búnaðinum á að bæta verkefnastýringu og upplýsingavinnslu Faxaflóahafna, auk þess sem fjarvinnslumöguleikar kerfisins eiga að einfalda starfsmönnum að vinna með viðskiptagögn óháð því hvar þeir eru staddir.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Ekki tekinn alvarlega

Bjarni Ármannsson, forstjóri Glitnis banka og formaður nýrra samtaka fjármálafyrirtækja, segir stofnun sameinaðra samtaka banka og verðbréfafyrirtækja og tryggingafyrirtækja hafa verið til umræðu allt frá árinu 2000.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

IMF segir hagvöxt góðan í S-Ameríku

Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn (IMF) segir verðhækkanir á hráolíu, aukin neysla á heimamarkaði og góð peningamálastjórn hafa komið löndum í Suður-Ameríku til góða og hafa uppfært hagvaxtarspá landanna.

Viðskipti erlent
Fréttamynd

Stjörnum prýdd ráðstefna

Í síðustu viku stóð ráðgjafarfyrirtækið Nordic eMarketing fyrir mikilli ráðstefnu og sýningu þar sem fjallað var um markaðssetningu og samskipti á netinu.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Promens hækkar boðið

Promens, dótturfélag Atorku, hækkaði í gær tilboð sitt í plastframleiðslufyrirtækið Polimoon, í kjölfar þess að Plast Holding A/S tilkynnti um hækkun síns tilboð til jöfnunar tilboði Promens.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Kauphöll yfir væntingum

Þýska kauphöllin í Frankfurt skilaði 175,1 milljón evra í hagnað á þriðja ársfjórðungi. Þetta svarar til 15,1 milljarðs íslenskra króna sem er 58 prósentum meira en á sama tíma fyrir ári.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Stjórn bíður átekta

Stjórn plastframleiðslufyrirtækisins Polimoon ASA getur ekki mælt með því að hluthafar samþykki yfirtökutilboð frá Plast Holding A/S. Þetta kemur fram í yfirlýsingu sem stjórnin sendi frá sér í kjölfar þess að Promens, dótturfélag Atorku, lýsti því yfir að það hygðist gera yfirtökutilboð um kaup á öllu hlutafé fyrirtækisins.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Time Warner þrefaldar gróða

Hagnaður bandaríska fjölmiðla- og útgáfusamsteypunnar Time Warner tæplega þrefaldaðist á þriðja fjórðungi ársins. Mestur hluti hagnaðarins kemur frá auglýsingatekjum nethluta félagsins, American Online (AOL). Hagnaður samsteypunnar nam 2,3 milljörðum Bandaríkjadala, jafnvirði 155,8 milljarða íslenskra króna, en hann nam 853 milljónum dala eða 57,7 milljörðum króna á sama tíma fyrir ári.

Viðskipti erlent
Fréttamynd

Verðbólgan er næstmest hér

Verðbólga innan Efnahags- og framfarastofnunarinnar (OECD) mældist 2,1 prósent á ársgrundvelli í september, samanborið við 3 prósent mánuðinn á undan. Verðbólgan er líkt og fyrri mánuði næstmest hér á landi.

Viðskipti innlent