Innlendar

Fréttamynd

Audda og Agli pakkað saman í strandblaki

Íslandsmótið í strandblaki fór fram í Fagralundi um helgina. Nýir Íslandsmeistarar voru krýndir auk þess sem sjónvarpsstjörnurnar Auðunn Blöndal og Egill Einarsson fengu að kenna á því.

Sport
Fréttamynd

ÍR-ingar með gott tak á bikarnum - myndir

ÍR-ingar héldu sigurgöngu sinni áfram í Bikarkeppni FRÍ um helgina og unnu bikarinn þriðja árið í röð. Þetta er jafnframt í tuttugasta sinn í 46 ára sögu bikarkeppninnar þar sem ÍR-ingar eru bikarmeistarar.

Sport
Fréttamynd

ÍR vann bikarinn í 20. sinn

ÍR-ingar urðu á laugardag bikarmeistarar í frjálsum íþróttum þriðja árið í röð en keppt var á Kópavogsvelli. ÍR-ingar höfðu betur í samanlagðri stigakeppni eftir baráttu við FH-inga. ÍR hlaut 170 stig en FH 153 stig.

Sport
Fréttamynd

ÍR bikarmeistari þriðja árið í röð

ÍR varð í dag bikarmeistari í frjálsum íþróttum þriðja árið í röð en keppni var að ljúka á Kópavogsvelli. FH-ingar urðu hlutskarpastir í karlaflokki en ÍR-ingar í kvennaflokki.

Sport
Fréttamynd

Arnar meistari 15. árið í röð

Arnar Sigurðsson, tennismaður úr TFK, er Íslandsmeistari utanhúss í tennis 15. árið í röð. Arnar þurfti þó að hafa óvenjulítið fyrir titlinum í ár því Raj Bonifacius, mótherji Arnars í úrslitum, þurfti að gefa leikinn vegna meiðsla.

Sport
Fréttamynd

ÍR-ingar með sjö stiga forskot eftir fyrri daginn

ÍR hefur forystu að loknum fyrri degi 46. Bikarkeppni FRÍ sem fer í ár fram á Kópavogsvellinum. ÍR-ingar hafa unnið bikarinn undanfarin tvö ár og eiga möguleika á því að verða bikarmeistarar í tuttugasta sinn.

Sport
Fréttamynd

Íslandsmótið í andspyrnu hafið - leikmaður kunni ekki reglurnar

Griðungar lögðu Gamma að velli í fyrsta leik keppnistímabilsins í áströlskum fótbolta eða andspyrnu um helgina. Úrslitin urðu 99-21 Griðungum í vil en þeir eiga titil að verja frá síðasta tímabili. Leifur Bjarnason fór á kostum hjá Griðungum og skoraði yfir 50 stig.

Sport
Fréttamynd

Helga Margrét: Fer bara í réttirnar í staðinn

Helga Margrét Þorsteinsdóttir er ekki enn komin af stað eftir meiðslin sem hún varð fyrir á EM unglinga á dögunum. Hún er búin að afskrifa það að ná lágmörkum fyrir HM í Kóreu og leggur nú áherslu á að losna alveg við meiðslin sem hafa hrjáð hana.

Sport
Fréttamynd

Stefnir á Ólympíugull árið 2018

Jakob Helgi Bjarnason er einhver allra efnilegasti skíðamaður Evrópu. Hann er einungis fimmtán ára en er stigahæsti skíðamaður heims í sínum aldursflokki og skrifaði nýverið undir stóran samning við skíðaframleiðandann Atomic.

Sport
Fréttamynd

Ragnheiður safnar fyrir sundinu með fyrirsætustörfum

Sundkonan Ragnheiður Ragnarsdóttir er nýkomin heim af HM í sundi í Sjanghæ í Kína. Ragnheiður er á leiðinni aftur út en framundan eru æfingar hjá henni í Suður-Afríku og svo gæti farið að hún yrði úti allt fram að Ólympíuleikunum í London á næsta ári.

Sport
Fréttamynd

Ásdís: Ég kem bara sterk inn í seinni hlutann

Ásdís Hjálmsdóttir varð í fyrrakvöld fyrsti Íslendingurinn sem tryggir sér þátttökurétt á Ólympíuleikunum í London 2012 þegar hún kastaði spjótinu 59,12 metra á Kastmóti ÍR. Ásdís var í viðtali hjá Ásgeiri Erlendssyni í kvöldfréttum Stöðvar 2 í gær.

Sport
Fréttamynd

Ásdís náði lágmarkinu fyrir London 2012

Ásdís Hjálmsdóttir, spjótkastari úr Ármanni, náði í kvöld lágmarkinu fyrir Ólympíuleikana í London 2012. Ásdís kastaði 59,12 metra í Laugardalnum í kvöld og var afar ánægð að hafa náð lágmarkinu sem er 59 metrar.

Sport
Fréttamynd

Sindri Hrafn áttundi á Ólympíuleikum æskunnar

Spjótkastarinnar Sindri Hrafn Guðmundsson tvíbætti eigið Íslandsmet í spjótkasti í sínum aldursflokki á Ólympíudögum æskunnar í síðustu viku. Sindri, sem æfir með Breiðabliki og er 16 ára gamall, bætti varð í 8. sæti í keppninni.

Sport
Fréttamynd

Mamma Kristínar heimsmeistara: Orðnar algjörar stjörnur í Grikklandi

Hin grísk-íslenska Kristín Krisúla Tsoukala varð í gær heimsmeistari í sundknattleik með gríska landsliðinu. Grikkir unnu 9-8 sigur á gestgjöfum Kína í úrslitaleiknum á HM í Sjanghæ. Kristín Krisúla er bæði með íslenskan og grískan ríkisborgararétt en hún er dóttir Þóru Bjarkar Valsteinsdóttur og Makis Tsoukalas.

Sport
Fréttamynd

Íslensk stelpa heimsmeistari í sundknattleik

Hin íslenska Kristín Krisúla Tsoukala varð í dag heimsmeistari í sundknattleik með gríska landsliðinu. Grikkir unnu 9-8 sigur á gestgjöfum Kína í úrslitaleiknum á HM í Sjanghæ.

Sport
Fréttamynd

Jakob Jóhann endaði í 25. sæti af alls 56 keppendum

Jakob Jóhann Sveinsson endaði í 25. sæti af alls 56 keppendum í 200 metra skriðsundi á heimsmeistaramótinu í sundi sem fram fer í Sjanghæ í Kína. Jakob, sem keppir fyrir Ægi, kom í marka á 2.13,84 mínútum og vartæplega 1,5 sekúndu frá Íslandsmetinu sem er í hans eigu, 2.12,39 mínútur. Jakob hefði þurft að synda á 2.12,78 mínútum til þess að komast í milliriðil.

Sport
Fréttamynd

Ragnheiður endaði í 34. sæti á HM í Kína

Ragnheiður Ragnarsdóttir endaði í 34. sæti af alls 87 keppendum í 100 metra skriðsundi á heimsmeistaramótinu í sundi sem fram fer í Sjanghæ í Kína. Ragnheiður kom í mark á 56,28 sekúndum en hún hefði þurft að synda á 54,86 til þess að komast í undanúrslitariðil.

Sport
Fréttamynd

Sigrún Brá bætti 19 ára gamalt Íslandsmet

Sundkonan Sigrún Brá Sverrisdóttir bætti um helgina 19 ára gamalt Íslandsmet í 1500 metra skriðsundi kvenna. Sigrún sem er í háskólanámi í Bandaríkjunum setti metið á móti í Columbia í Missouri-ríki.

Sport
Fréttamynd

Íslenskir tenniskrakkar standa sig vel í Danmörku

Hjördís Rósa Guðmundsdóttir úr BH sigraði í flokki stúlkna 14 ára og yngri á móti í Værlöse í Danmörku í gær. Úrslitaleikurinn var alíslenskur því Hjördís lagði Önnu Soffiu Grönholm úr TFK í úrslitum 6:2 og 7:5. Hinrik Helgason úr TFK komst í úrslit í flokki 16 ára og yngri en beið lægri hlut.

Sport