Lífið

Svona tvöfaldar þú fjörutíu fermetra íbúð

Stefán Árni Pálsson skrifar
Magnað hvað er hægt gera með hugmyndarfluginu.
Magnað hvað er hægt gera með hugmyndarfluginu.
Plássleysi er eitthvað sem margir kannast mjög vel við. Til eru allskonar trix í þeim efnum en innanhúshönnuðir hafa margir hverjir lagt mikla áherslu á að skapa sér sem mest fermetrapláss og hægt er.

Á Facebook-síðu Viral Thread má sjá magnað myndband innan úr lítilli íbúð sem hefur óteljandi möguleika.

Íbúðin er er aðeins 40 fermetrar að stærð en með ótrúlegri hönnun er hægt að kreista fram pláss sem er yfir 90 fermetrar. 

Meðal annars er hægt að bjóða tíu manns í mat í rúmgóðri borðstofu en þetta magnaða myndband má sjá hér að neðan.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×