Glamour

Svona gerir þú bestu útsölukaupin

Kynning skrifar
Glamour/Getty
Það er orðinn fastur liður hjá verslunum að hefja nýtt ár með allsherjar útsölum. Fatalínur síðasta misseris fara á niðursett verð til þess að rýma fyrir nýjum flíkum úr vorlínum búðanna.

Þó að margir bíði kannski óþreyjufullir eftir hækkandi sól og brakandi ferskum trendum er engu að síður hægt að gera góð kaup á útsölum. Mikilvægt er þó að vanda valið svo fíkurnar standist tímans tönn.

Hér koma nokkur góð ráð fyrir útsölukaupin frá Glamour.

1. Taktu til í fataskápnum áður en þú skellir þér á útsölurnar til þess að fá betri yfrsýn yfir hvað þú átt og þar af leiðandi hvað þig vantar.

2. Fjárfestu frekar í einföldum og klassískum fíkum á útsölu sem þú veist að þú kemur til með að nota mikið. 

3. Leitaðu að dýrari og vandaðri hlutum á útsölu, það er betri fjárfesting þegar til lengri tíma er litið.

4. Forðastu skyndikaup á útsölum – hugsaðu málið og nýttu útsölurnar í að kaupa vörur sem þú hefur haft augastað á en kannski ekki tímt að kaupa. 

Dömubuxur og pils


Photo Gallery by QuickGallery.com


Það er mjög sniðugt að nota útsölurnar til að finna góðar og klassískar buxur, hér má sjá fallegt úrval af buxum og pilsum sem við tókum saman. 

Fylgihlutir


Photo Gallery by QuickGallery.com


Fallegir fylgihlutir detta aldrei úr tísku, finndu þinn draumafylgihlut nú á niðursettu verði í myndaalbúminu fyrir ofan.

Herraklæði


Photo Gallery by QuickGallery.com


Við tókum saman glæsilegt úrval af buxum, jökkum, skóm, bolum og bindum; allt fyrir herrann. 

Yfirhafnir


Photo Gallery by QuickGallery.com


Nú er rétti tíminn til þess að næla sér í fallega jakka og hlýjar yfirhafnir, enda margir kaldir mánuðir eftir áður en fer að vora.  

Allt fyrir börnin


Photo Gallery by QuickGallery.com


Dásamlegar flíkur fyrir börnin á góðu verði. Tilvalið er að nýta vetrarútsölurnar til að birgja sig upp fyrir smáfólkið í fjölskyldunni. 

Bolir og skyrtur


Photo Gallery by QuickGallery.com


Vantar okkur ekki alltaf boli? Fallegt úrval af bolum, toppum, blússum og skyrtum á útsölunum í ár. 

Kjólar


Photo Gallery by QuickGallery.com


Kjólar fyrir öll fínni tilefni. Sparaðu þér stressið og nældu þér í árshátíðarkjólinn á útsölunum. Það er alltaf tækifæri til að klæða sig upp.  






×