Bílar

Svakaleg velta hjá Svani í Tennessee

Finnur Thorlacius skrifar
Fjöldi íslenskra torfærukeppanda sýndu frábær tilþrif í heilmikilli torfærukeppni sem haldin var í Tennesse í Bandaríkjunum um daginn. Einn þeirra var Svanur Örn Tómasson á Insane bíl sínum. Hann varð fyrir því að velta bíl sínum í einni af erfiðari þrautum keppninnar og steyptist bíll hans með miklu afli niður bratta brekku og endaði í pörtum á flata þar fyrir neðan.

Þessa svakalegu veltu má sjá í myndskeiðinu hér að ofan. Áhorfendur tóku mikil andköf og heyrast mikil hræðsluhljóð frá þeim í myndskeiðinu, enda töldu þeir ólíklegt að Svanur væri heill heilsu inní brakinu, en þó reyndist svo vera.

Liðsmenn Insane bílsins dóu ekki ráðalausir þó svo bíll þeirra væri ansi illa leikinn og gerðu við hann alla nóttina eftir. Daginn eftir ók svo sonur Svans bílnum áfram í keppninni. Það er ekki að spyrja að Íslendingum í torfæruakstri.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×