Lífið

Svæsið klám á Facebooksíðu Vilhjálms Bjarnasonar

Jakob Bjarnar skrifar
Viðkvæmar sálir ættu að forðast Facebooksvæði Vilhjálms Bjarnasonar.
Viðkvæmar sálir ættu að forðast Facebooksvæði Vilhjálms Bjarnasonar. visir/frosti
Frosti Logason útvarpsmaður rak upp stór augu þegar hann sótti heim Facebooksíðu Vilhjálms Bjarnasonar þingmanns. Það sem tók á móti honum þar var verulega svæsið lesíbíuklám. Frosti, sem reyndar er ekki fæddur í gær, taldi sig vita hvers kyns var; að Vilhjálmur sé fórnarlamb svæsins víruss sem leikur um Facebook og lýsir sér þannig að klámmyndir birtast hjá saklausu fólki.

Flestir sem eru á Facebook kannast við þetta hvimleiða fyrirbæri, sem lýsir sér þannig að ekki þarf annað en að einhver Facebookvinur ýti í ógáti á vafasamar myndir, þá dreifir sá klámfengnum myndum eða öðru torkennilegu og/eða óæskilegu á veggi vina sinna. Koma má í veg fyrir þess háttar uppákomu með því að breyta stillingum á Facebookreikningi sínum sem virka þannig að menn þurfi að samþykkja sérstaklega færslur á vegg sínum, sem koma frá öðrum.

Frosti setur þetta hins vegar í samhengi við afstöðu Vilhjálms til frumvarps Pírata um afnám laga um guðlast.

„Mér fannst svolítið sérstakt að einn þingmaður hafi sett sig á móti því að lög um guðlast yrðu afnumin og ákvað ég þess vegna að kíkja inn á facebook síðu kappans til að sjá hvort hann færði þar fram einhver rök fyrir undarlegri afstöðu sinni. Til að gera langa sögu stutta þá sit ég eftir með fleiri spurningar en svör eftir þá heimsókn,“ skrifar Frosti og birtir meðfylgjandi mynd af vegg Vilhjálms, reyndar án þess að blörra myndina.

Hefur þetta vakið verulega kátínu meðal vina Frosta á Facebook.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×