Matur

Súkkulaðibitakökur sem svíkja engan - UPPSKRIFT

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar

Súkkulaðibitakökur

2 bollar hveiti

1/2 tsk matarsódi

1/2 bolli + 1 msk ólífuolía

1/2 bolli sykur

1 bolli púðursykur

1/2 tsk salt

2 tsk vanilludropar

1 stórt egg

1 stór eggjarauða

1 1/2 bolli súkkulaðidropar

3/4 bolli ristaðar pekan- eða valhnetur, ef vill



Hitið ofninn í 165°C og klæðið ofnplötur með bökunarpappír. Hrærið hveiti og matarsóda saman og setjið til hliðar. Blandið sykri, púðursykri, salti, vanilludropum og ólífuolíu saman í annarri skál. Bætið eggi og eggjarauðunni saman við og blandið vel saman. Leyfið blöndunni að standa í þrjár mínútur og hrærið svo í þrjátíu sekúndur. Endurtakið tvisvar í viðbót. Blandið hveitiblöndunni varlega saman við með sleif. Blandið súkkulaðidropunum og hnetunum saman við. Búið til litlar kökur úr deiginu og setjið á ofnplötur. Skreytið þær með sjávarsalti ef vill og bakið í þrettán til fimmtán mínútur.

Fengið hér.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×