Fótbolti

Styttist í að kínverskt lið rjúfi 100 milljóna dollara múrinn

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Tim Cahill, ástralski landsliðsmaðurinn sem leikur með Shanghai Shenhua í kínversku úrvalsdeildinni, segir það aðeins tímaspursmál hvenær eitthvað lið í deildinni greiði 100 milljónir dollara (70 milljónir punda, 13 milljarðar íslenskra króna) fyrir leikmann.

Metið yfir dýrasta leikmann í sögu kínversku úrvalsdeildarinnar var slegið fjórum sinnum á síðustu vikum en það hófst með kaupum Shanghai SIPG á Elkeson frá Guangzhou Evergrande. Hann kostaði 18 milljónir evra.

Fyrrverandi Íslendingaliðið Jiangsu Suning borgaði svo 28 milljónir evra fyrir Ramires frá Chelsea áður en Evergrande keypti Jackson Martínez frá Atlético Madríd fyrir 42 milljónir evra. Jiangsu var fljótt að ná metinu aftur með 50 milljóna evra kaupum á Alex Teixeira frá Shakhtar Donetsk.

„Þegar ég fór fyrst til Kína vissi ég alveg hver hugsjónin var. Ég vissi hvað stóð til og hvað liðin vildu gera. En að sjá hversu langt þetta er komið er alveg klikkað,“ segir Cahill í viðtali við Fox Sports.

Leikmenn á borð við Gervinho og Fredy Guardin færðu sig einnig til kína í janúar en á síðustu leiktíð spiluðu þar Paulinho, Demba Ba, Stephane Mbia og Asamoah Gyan. Shanghai Shenhua gæti svo verið að ganga frá kaupum á Ezequiel Lavezzi frá PSG.

„Kínversku liðin eiga pening og þau vilja gera eitthvað. Þau skilja um hvað þetta snýst og ef þau eru ekki ánægð með leikmenn þá bara fara þeir. Þess vegna er leikmannaveltan svona mikil. Maður sér mikið af leikmönnum koma og fara,“ segir Cahill.

„Það er ruglað að sjá þetta og þetta mun bara verða verra. Þessi deild á eftir að verða stór. Það styttist í að kínverskt lið rjúfi 100 milljóna dollara múrinn og það auðveldlega,“ segir Tim Cahill.


Tengdar fréttir

Ramires farinn til Kína

Sama dag og Jiangsu Suning missti Viðar Örn Kjartansson opnaði félagið veskið og keypti Brasilíumanninn Ramires frá Chelsea.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×