Innlent

Stuðningur NATO ögri friðarviðræðunum Tyrkja og Kúrda

Stefán Rafn Sigurbjörnsson skrifar
Katrín segir að stuðninginn mætti túlka sem stuðning við aðgerðir gegn Kúrdum.
Katrín segir að stuðninginn mætti túlka sem stuðning við aðgerðir gegn Kúrdum. Mynd/Utanríkisráðuneytið
Katrín Jakobsdóttir
„Eins og skilja mátti niðurstöðu fundarins á þriðjudaginn mátti túlka það sem svo að Atlantshafsbandalagið væri að styðja aðgerðir gegn Kúrdum,“ segir Katrín Jakobsdóttir, formaður Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs.

Katrín hefur óskað eftir að utanríkismálanefnd Alþingis fundi um stuðning Atlantshafsbandalagsins við aðgerðir Tyrklands á landamærum Sýrlands og Íraks.

„Atlantshafsbandalagið er að lýsa yfir stuðningi við aðgerðir Tyrkja sem beinast ekki síður gegn Kúrdum heldur en ISIS og það er auðvitað ákveðin breyting.“

Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra hefur lagt áherslu á samvinnu með Atlantshafsbandalaginu í aðgerðum gegn ISIS en enn fremur telur hann mikilvægt að styðja við friðarviðræður Kúrda og Tyrkja. Katrín telur að í þessu felist ákveðin mótsögn.

„Mér finnst mikilvægt að fá stefnu íslenskra stjórnvalda á hreint í þessu máli því það er auðvitað þversagnakennt að styðja við árásir gegn Kúrdum en styðja um leið friðarviðræðurnar. Ég styð þessar friðarviðræður Tyrkja og Kúrda og það hefur Evrópusambandið líka gert en ég hef áhyggjur af því að þessi stuðningur NATO við aðgerðir Tyrkja setji strik í reikninginn.“

Katrín segir að hún hafi þegar rætt við formann utanríkismálanefndar og vonast er til að nefndin komi saman í næstu viku.

Tyrkir hófu loftárásir gegn herskáa hluta Verkamannaflokks Kúrda (PKK) og ISIS í síðustu viku.

Árásirnar eru til komnar vegna árása vígamanna beggja sveita innan landamæra Tyrklands.

Í gær létust tveir tyrkneskir lögregluþjónar og tveir vígamenn Verkamannaflokks Kúrda í árás þess síðarefnda á lögreglustöð og lestarteina í Tyrklandi.

Kúrdar og Tyrkir hafa átt í friðarviðræðum undanfarin tvö ár en þær eru nú runnar í sandinn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×