Lífið samstarf

Stuðið var baksviðs - sjáðu myndirnar

Ellý Ármanns
Ísak Freyr sá um förðunina á Yulia tískusýningu Hildar í Hafnarhúsinu á Hönnunarmars.
Ísak Freyr sá um förðunina á Yulia tískusýningu Hildar í Hafnarhúsinu á Hönnunarmars.
Meðfylgjandi myndir voru teknar í Hafnarhúsinu á sýningu Hildar Yeoman. Förðunarfræðingurinn, Ísak Freyr, sem búsettur er í London, kom sérstaklega til landsins til að stjórna förðunarteymi tískusýningarinnar.

Ísak Freyr sá alfarið um förðun fyrirsætanna með vörum frá L'Oreal þar sem hann lagði áherslu á augun. Aðspurður segir Ísak að hann og Hildur hafi ákveðið að vera ekki með jafn tryllta förðun og oft áður en þau tvö vinna mikið saman. 

Hildur Yeoman baksviðs. 

Yulia er nýjasta lína Hildar þar sem ólíkum efnum er blandað saman og skemmtileg og lífleg print eru notuð. Í sýningunni voru einnig notaðir sokkar frá ítalska sokkabuxnamerkinu Oroblu.

Förðunin sem Ísak hannaði er mjög hátískuleg. Í aðalhlutverki voru svartur eyeliner og svartur augnskuggi. Ísak mótaði augnförðunina með svörtu förðunarvörunum og setti loks fallegan sanseraðan bláan augnskugga yfir hana og kremaðan silfraðan augnskugga í augnkróknana.

Þegar fyrirsæturnar lokuðu augunum var útlitið eins og heiðskír næturhiminn. Til að gera augnhárin áberandi notaði Ísak nýja ofurþykkingarmaskarann Miss Manga frá L'Oreal. 

Húðin var í aukahlutverki að sögn Ísaks en til að gefa henni fallega áferð og heilbrigðan ljóma notaði hann nýja Infallible farðann frá L'Oreal. Að lokum setti hann örlitla skyggingu undir kinnbeinin og smá ljóma yfir þau. Förðunin fullkomnaði heildarútlit fyrirsætanna fyrir sýningu Hildar eins og sjá má.

Yulia, yfirskrift sýningarinnar, er sprottin út frá sögu fjölskyldu Hildar, þar sem frelsi einstaklingsins til að hafna borgaralegum lífsgildum var grunnþema sýningarinnar.

Ísak hefur á stuttum tíma skapað sér stórt nafn í förðunarheiminum og tekið að sér mörg stór verkefni. 

Smelltu á efstu mynd til að skoða albúmið (128 myndir) í heild sinni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×