Lífið

Strákarnir fögnuðu sigrinum á Englandi með Skímó í botni

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Jón Daði í baráttunni við Chris Smalling í 2-1 sigrinum á Englandi í Nice í sumar.
Jón Daði í baráttunni við Chris Smalling í 2-1 sigrinum á Englandi í Nice í sumar. Vísir/Vilhelm
Karlalandslið Íslands í knattsyrnu er maður ársins hjá Stöð 2. Arnór Ingvi Traustason, Hannes Þór Halldórsson og Kári Árnason mættu fyrir hönd liðsins og tóku við viðurkenningu í Kryddsíldinni á Stöð 2 í dag.

Í spjalli þeirra við Eddu Andrésdóttur kom meðal annars fram að Jóhann Berg Guðmundsson, kantmaðurinn knái, hefði verið rekinn sem plötusnúður í búningsklefa strákanna eftir leikinn gegn Englandi. Hans tónlistarval fengi misjafnar undirtektir.


Hannes Þór sagði að Selfyssingurinn Jón Daði Böðvarsson hefði verið ráðinn í hans stað og þá var ekki að spyrja að leikslokum. Lög Skítamórals fóru í loftið og sungu strákarnir með strákabandinu frá Selfossi og skemmtu sér vel í klefanum eftir leikinn ógleymanlega í Nice.

„Þetta minnti mig aftur á Skítamóral og þeir hafa verið á playlistanum síðan,“ sagði Hannes Þór.

Fram kom í spjallinu að Lars Lagerbäck hefði sent strákunum okkar kveðju í pósti á dögunum og þakkað þeim fyrir samstarfið.

Þá sagði Kári Árnason að hann ætti von á því að knattspyrnuárið 2017 yrði enn betra en 2016.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×