Innlent

Strætóferðir gætu fallið niður vegna manneklu

Stefán Ó. Jónsson skrifar
Vísir/Pjetur
Röskun getur orðið á þjónustu Strætó á höfuðborgarsvæðinu á næstu vikum þar sem ekki hefur tekist að manna allar stöður vagnstjóra.

Einstaka ferðir gætu fallið niður sem og að aukavagnar verða ekki alltaf til taks á fjölförnum leiðum. Ástæðan er fyrst og fremst sú að þjónusta Strætó hefur aukist talsvert að undanförnu og enn standa yfir sumarleyfi vagnstjóra.  
 
Í tilkynningu frá Strætó segir að um millibilsástand sé að ræða sem ekki er gert ráð fyrir að vari til langs tíma. Viðskiptavinir Strætó eru hvattir til að fylgjast vel með heimasíðu Strætó bs. þar sem reglulega verða settar inn tilkynningar um hvaða ferðir falla niður.

„Lögð verður áhersla á að halda uppi ferðum á fjölmennum og mikið notuðum leiðum þannig að ferðir falli frekar niður á þeim leiðum sem minna eru notaðar. Vegna þessa er mikið álag á vagnstjórum og eiga þeir hrós skilið fyrir hversu vel þeir hafa staðið undir því. Við biðjum viðskiptavini okkar velvirðingar á skertri þjónustu og um að sýna vagnstjórum skilning,“ segir í tilkynningunni.


Unnið er hörðum höndum að ráðningu nýrra starfsmanna og mönnun vakta. Það verkefni gengur vel að sögn talsmanns Strætó og „bætast nýir vagnstjórar í hópinn á hverjum degi auk þess sem von er á fleiri vagnstjórum í september og október.“



Fleiri fréttir

Sjá meira


×