Bílar

Stórsýning hjá Arctic Trucks

Finnur Thorlacius skrifar
Toyota Land Cruiser á nýju dekkjunum sem sem er afrakstur samstarfs milli Arctic Trucks og Nokian.
Toyota Land Cruiser á nýju dekkjunum sem sem er afrakstur samstarfs milli Arctic Trucks og Nokian.
Hægt verður að skoða götuskráða sexhjóla Hiluxa sem meðal annars verða notaðir á Suðurskautinu á komandi mánuðum, auk þess sem margir breyttir bílar af ýmsum stærðum og gerðum verða á planinu.

Ef einhverjum finnst þeir ekki nægilega stórir eða kraftmiklir, þá verður 1600 hestafla Turbotröllið Katla á staðnum!  Einnig verður hægt að skoða hjólin sem Team Yamaha – Íslandsmeistararnir í motocross óku á í sumar.

Kynnt verður nýtt 35“ dekk sem er afrakstur samstarfs milli Arctic Trucks og hins þekkta dekkjaframleiðanda Nokian og í gangi verða frábær tilboð á öllum tegundum jeppadekkja á sýningardaginn.

Þetta er sýning sem bílaáhugamenn ættu ekki að láta framhjá sér fara. Sýningin stendur frá kl. 11 til 16 laugardaginn 20. september.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×