Lífið

Stórstjarna í Skandinavíu

Benedikt Bóas skrifar
Sindri Freyr tónlistarmaður hefur óvænt verið að gera það alveg gríðarlega gott í Skandinavíu.
Sindri Freyr tónlistarmaður hefur óvænt verið að gera það alveg gríðarlega gott í Skandinavíu. Vísir/GVA
Lagið Way I’m Feeling sem Eyjapeyinn Sindri Freyr Guðjónsson samdi hefur slegið í gegn í Noregi og Svíþjóð. Lagið er að finna á nýrri plötu hans sem ber sama nafn. Lagið hefur verið spilað yfir 400 þúsund sinnum á tónlistarveitunni Spotify og önnur lög á plötunni njóta einnig mikilla vinsælda.

Sindri tekur óvæntri frægð með stóískri ró en ætlar sér að komast til Skandinavíu sem fyrst til að halda tónleika. Fyrst þarf hann að klára jólaprófin en hann er á öðru ári í viðskiptafræði við Háskóla Íslands.

„Þetta eru rosalegar tölur, sem er jákvætt,“ segir Sindri sem situr sveittur þessa dagana á Þjóðarbókhlöðunni og undirbýr sig fyrir próf. „Ég datt inn á einhvern stóran spilunarlista sem Spotify gerir og er vinsæll þarna úti. Það er fullt af fólki sem er áskrifendur að þessum listum og síðan hefur lagið haldið áfram að vera spilað.“

Eftir prófin ætlar Sindri að skoða hvort hann geti sótt löndin heim. „Maður þarf að fara að kíkja þarna. Ég er aðeins að átta mig á þessu. Þegar námið er búið þá fer maður að skoða hvernig þessar Spotify-tekjur virka,“ segir hann léttur.

Sindri gaf út sína fyrstu plötu, Way I’m Feeling, í október en hann hefur samið sín eigin lög frá því hann var aðeins 14 ára. Hann er Eyjapeyi í húð og hár, fæddist þar 1994. „Ég hélt útgáfutónleika á Rosenberg og spilaði líka í fyrsta sinn á Airwaves. Svo kom ég fram á Þjóðhátíð í sumar sem var ótrúlega skemmtilegt. Það var eiginlega klikkað. Ég hef spilað áður á Þjóðhátíð en þá var ég ekki að spila mín eigin lög og það voru fáir í brekkunni. Í sumar fékk ég betra pláss og það var í einu orði klikkað.“

Sindri segist ætla að einbeita sér að prófunum en vonast til að geta spilað á einhverjum tónleikum eftir áramót.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×