Fótbolti

Stórsigur Barcelona í endurkomu Messi | Sjáðu mörkin

Smári Jökull Jónsson skrifar
Barcelona vann stórsigur gegn Deportivo í spænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag. Lokatölur urðu 4-0 og Barcelona því aftur komið á sigurbraut.

Barca hafði aðeins unnið tvo af síðustu fimm leikjum sínum í deildinni en í dag var aldrei spurning um hvernig leikurinn færi. Leikmenn Barcelona léku á als oddi og voru komnir í 3-0 strax í fyrri hálfleik.

Rafinha skoraði fyrsta mark leiksins í 21.mínútu og hann bæti við öðru marki á 36.mínútu. Luis Suarez kom Börsungum í 3-0 á 43.mínútu og ljóst að Barcelona færi með sigur af hólmi.

Lionel Messi skoraði fjórða mark Barcelona á 58.mínútu en hann hafði þá aðeins verið inni á vellinum í þrjár mínútur. Messi hefur átt við meiðsli að stríða en sneri aftur í dag með stæl.

Barcelona skýst upp í 2.sætið í deildinni með sigrinum en Atletico Madrid og Real Madrid sem eru í sætunum þar á eftir eiga leik til góða. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×