Lífið

Stórglæsilegt einbýlishús til sölu með útsýni yfir Elliðavatn

Stefán Árni Pálsson skrifar
Fasteignasalan LIND er með stórglæsilegt 350 fermetra einbýlishús í Kópavoginum á söluskrá en magnað útsýni er innan úr eigninni.

Gríðarleg lofthæð er í húsinu en hún er yfir fimm metrar í stofunni og anddyri. Arkitekt hússins er Kristiaan Pringels frá arkitektastofu í Gent í Belgíu og voru allar innréttingar sérsmíðaðar.

Edda Ríkharðsdóttir innanhúsarkitekt sá um alla hönnun í húsinu. Í húsinu eru fjögur rúmgóð svefnherbergi og er eldhúsið heilir sextíu fermetrar.

Tvær stofur í húsinu, báðar með arni og mikilli lofthæð. Útgengt er út í garð frá neðri stofu og út á verönd úr efri stofu. Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar, býr í næsta húsi og er því um rándýran nágranna að ræða. Fasteignamatið eignarinnar er um 93 milljónir en óskað er eftir tilboði.

Húsið hans Kára Stefáns er hér merkt með rauðum hring.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×