Bílar

Stoppaði fyrir andarungum og fékk 90 daga fangelsisdóm

Finnur Thorlacius skrifar
Varhugavert getur verið að klossbremsa fyrir andarungum sem eru á leið sinni yfir hraðbrautir.
Varhugavert getur verið að klossbremsa fyrir andarungum sem eru á leið sinni yfir hraðbrautir.
Kanadísk kona fékk nýlega dóm þar sem henni er gert að sitja í fangelsi í 90 daga fyrir að stoppa fyrir hópi andarunga. Það hljómar harður dómur, en með gjörð sinni olli hún tvöföldu dauðaslysi. Í því ljósi er dómur hennar kannski ekki mjög harður.

Hún missir að auki ökuréttindi sín í 10 ár og er gert að vinna 240 klukkustunda samfélagsvinnu. Konan, Emma Czornobaj, stöðvaði bíl sinn á vinstri akrein á kanadískri hraðbraut er hún sá að fyrir framan bíl hennar var hópur af andarungum á leið sinni yfir veginn.

Á eftir henni voru feðgin sem tvímenntu á mótorhjóli og dóu þau bæði er hjól þeirra skall á bíl konunnar á ríflega 100 km hraða.   




Fleiri fréttir

Sjá meira


×